Tónlist

Tónlistarhátíðinni við Skógafoss aflýst

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Innlendir sem erlendir tónlistarmenn höfðu boðað komu sína á hátíðina sem átti að fara fram í júlí nk.
Innlendir sem erlendir tónlistarmenn höfðu boðað komu sína á hátíðina sem átti að fara fram í júlí nk. Vísir/Vilhelm
Ákveðið hefur verið að aflýsa tónlistarhátíðinni Night+Day sem fyrirhuguð var við Skógafoss í júlí. Ástæðan er viðkvæmt ástand svæðisins við fossinn, að sögn skipuleggjenda. Umhverfisstofnun setti svæðið á rauðan lista á dögunum.

Fram kemur í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar að aðrar staðsetningar hafi verið skoðaðar, með það að markmiði að flytja hátíðina annað, en að ekki hafi tekist að flytja hana með svo skömmum fyrirvara. Allir seldir miðar verði endurgreiddir að fullu.

Hátíðin átti að fara fram dagana 14. til 16. júlí næstkomandi. Eftir að tilkynnt var um tónleikahöldin var greint frá því að ekki hefði fengist leyfi fyrir afnotum af tjaldsvæði við Skógafoss – en í framhaldinu fengu skipuleggjendur leyfi til hátíðarhaldanna á einkalóð við fossinn.

Umhverfisstofnun greindi frá því síðastliðinn fimmtudag að svæðið sé komið í hættu vegna mikils ágangs ferðamanna og sé komið á rauðan lista stofnunarinnar. Markmið listans er að forgangsraða fjármunum og kröftum til verndunar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×