Viðskipti innlent

Iða Brá framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Iða Brá Benediktsdóttir hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999.
Iða Brá Benediktsdóttir hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999.
Iða Brá Benediktsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka og tekur við starfinu þann 1. júlí.

Hún hefur setið í framkvæmdastjórn bankans frá því í febrúar 2016 þegar hún tók við starfi framkvæmdastjóra fjárfestingasviðs bankans. Iða Brá tekur við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs af Helga Bjarnasyni sem nýverið hætti störfum hjá bankanum.

Að því er fram kemur í tilkynningu mun Freyr Þórðarson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, jafnframt sinna starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs, fyrst um sinn.

„Iða Brá er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með MSc í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Hollandi og með próf í verðbréfaviðskiptum. Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 þegar hún hóf störf í greiningardeild bankans.

Frá þeim tíma hefur hún gegnt ýmsum störfum innan bankans, m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja; Sparisjóðs Ólafsfjarðar, AFL sparisjóðs, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda hf.,“ segir í tilkynningu Arion banka.

Um viðskiptabankasvið Arion banka

Viðskiptabankasvið Arion banka veitir einstaklingum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum vandaða fjármálaþjónustu. Á vegum viðskiptabankasviðs eru starfrækt 24 útibú og þjónustuver auk þess sem mikil áhersla er lögð á stafræna þjónustu sem meðal annars er veitt í netbanka Arion banka og Arion appinu. Alls eru um 350 stöðugildi á sviðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×