Viðskipti innlent

Landsbankinn fær 7,8 milljarða lán frá Norræna fjárfestingarbankanum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Landsbankinn fékk einnig lán frá Norræna fjárfestingarbankanum árið 2015.
Landsbankinn fékk einnig lán frá Norræna fjárfestingarbankanum árið 2015. Vísir/Andri marínó
Norræni fjárfestingarbankinn, NIB, og Landsbankinn hafa skrifað undir nýjan lánasamning til sjö ára. Lánið verður notað til að fjármagna lítil og meðalstór fyrirtæki en fjárhæðin nemur 75 milljónum Bandaríkjadala eða um 7,8 milljörðum íslenskra króna.

Í fréttatilkynningu frá Landsbankanum um málið segir að Landsbankinn muni endurlána fjárhæðina, 7,8 milljarða króna, til lítilla og meðalstórra fyrirtækja auk umhverfistengdra verkefna á Íslandi. Um er að ræða fyrirtæki í ýmsum atvinnugreinum, svo sem fiskveiðum, fiskvinnslu, iðnaði og ferðaþjónustu. Þá verður einnig einhverju veitt til uppbyggingar atvinnuhúsnæðis.

Lánveitingarnar verða grundvallaðar á því hversu vel verkefnin falla að því markmiði Norræna fjárfestingarbankans að efla samkeppnishæfni og stuðla að umhverfisvernd í aðildarríkjum bankans.

Annað lánið sem NIB veitir Landsbankanum

„Samstarf okkar við Landsbankann, sem miðar að því að ná til lítilla og meðalstórra íslenskra fyrirtækja, hefur verið mjög árangursríkt og það gleður okkar að halda því áfram með nýrri lánveitingu,“ segir Henrik Normann, forstjóri Norræna fjárfestingarbankans að því er kemur fram í fréttatilkynningunni.

„Lánasamningurinn við NIB rennir styrkari og fjölbreyttari stoðum undir erlenda fjármögnun Landsbankans. Með samningnum er staðfest, enn og aftur, að bankinn nýtur aukins trausts meðal erlendra lánveitenda. Samvinnan við NIB hefur verið árangursrík og mun hún halda áfram að koma viðskiptavinum okkar til góða ásamt því að styðja vel við samfélagsstefnu bankans,“ segir Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.

Þetta er annað lánið sem Norræni fjárfestingarbankinn veitir Landsbankanum. Fyrra lánið var veitt árið 2015 og hefur að fullu verið endurlánað.

Norræni fjárfestingarbankinn er alþjóðleg fjármálastofnun í eigu átta aðildarlanda: Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháen, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn lánar til opinberra verkefna og einkaverkefna jafnt innan sem utan aðildarríkjanna






Fleiri fréttir

Sjá meira


×