Enski boltinn

Jesus vill fá Alves til City

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gabriel Jesus skoraði sjö mörk fyrir Manchester City á síðasta tímabili.
Gabriel Jesus skoraði sjö mörk fyrir Manchester City á síðasta tímabili. vísir/getty
Brasilíski framherjinn Gabriel Jesus vill ólmur fá landa sinn, Dani Alves, til Manchester City.

Alves staðfesti í gær að hann væri á förum frá Juventus sem hann lék með á síðasta tímabili.

Líklegast þykir að Alves fari til City sem vantar hægri bakvörð eftir að hafa látið Pablo Zabaleta og Bacary Sagna fara. Þar myndi Alves hitta fyrir Pep Guardiola, fyrrverandi knattspyrnustjóra sinn hjá Barcelona.

„Ég verð mjög glaður ef hann kemur,“ sagði Jesus um Alves. „Ég er hrifinn af orkunni sem hann býr yfir, hún hvetur hópinn áfram.“

Jesus, sem er tvítugur, kom til City í janúar og skoraði sjö mörk í 11 leikjum fyrir liðið á síðasta tímabili.


Tengdar fréttir

Alves fær að fara frá Juventus

Brasilíski bakvörðurinn líklega á leið til síns gamla læriföðurs Pep Guardiola hjá Manchester City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×