Viðskipti innlent

Reginn fellur frá kaupum U6 fasteignafélags

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Helgi S. Gunnlaugsson, forstjóri Regins.
Helgi S. Gunnlaugsson, forstjóri Regins. Vísir/Valli
Reginn fasteignafélag hefur hætt við kaup á fasteignafélaginu U6 ehf.  Þann 21. Desember 2016 var tilkynnt að Reginn hf. hygðist kaupa allt hlutafé í félagi U6.

Tekið var fram að fyrirvarar um áreiðanleikakannanir fylgdu meðal annars kauptilboðinu.

Niðurstöður kannananna urðu þess valdandi að viðræður milli aðilana hófust að nýju og ákveðið var að Reginn hf. myndi falla frá kaupunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×