Viðskipti erlent

Dæmdur í fangelsi fyrir mútugreiðslur

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Vogunarsjóðurinn Och-Ziff er skráður í kauphöllina í New York.
Vogunarsjóðurinn Och-Ziff er skráður í kauphöllina í New York. Vísir/EPA
Sonur fyrrverandi forsætisráðherra Gabon hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að aðstoða bandaríska vogunarsjóðinn Och-Ziff Capital Management við að múta háttsettum afrískum embættismönnum. Sjóðurinn keypti í mars á þessu ári 6,6 prósenta hlut í Arion banka.

Maðurinn, Samuel Mebiame, játaði sök í lok síðasta árs og viðurkenndi að hafa boðið embættismönnum mútur í umboði vogunarsjóðsins. Í staðinn fékk Och-Ziff greiðan aðgang að embættismönnunum sem tryggði sjóðnum mjög ábatasama viðskiptasamninga víða í álfunni. Í frétt Reuters segir að Mebiame hafi meðal annars boðið embættismönnum fé, yfir eitt hundrað milljónir dala, sportbíla og leiguflugvélar.

Och-Ziff og forstjóri sjóðsins, Daniel Och, féllust í september í fyrra á að greiða 412 milljónir dala, sem jafngildir um 55 milljörðum íslenskra króna, í sekt vegna málsins. Um var að ræða hæstu sekt sem lögð hefur verið á vogunarsjóð vegna mútugreiðslna. Bandaríska verðbréfaeftirlitið hefur jafnframt ákært tvo fyrrverandi stjórnendur sjóðsins fyrir hlut þeirra í málinu.

Fyrr í sumar var greint frá því að Och-Ziff hefði ekki lagt fram beiðni til Fjármálaeftirlitsins um að fá heimild til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka ef sjóðurinn kýs að nýta sér kauprétt síðar á árinu og eignast þannig stærri hlut í bankanum. Virkur telst sá eignarhlutur sem er tíu prósent hlutafjár eða meira.

Samkvæmt frétt Morgunblaðsins mun sjóðurinn hafa fengið ábendingu um að ekki væri víst að hann myndi hljóta náð fyrir augum FME sem virkur eigandi í bankanum. Einkum valdi þar sú staðreynd að umtalsvert rót hafi verið á sjóðnum eftir háværa umræðu um mútugreiðslurnar í Afríku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×