Innlent

Með hæstu einkunn í MBA

Sæunn Gísladóttir skrifar
Egill hlaut ágætiseinkunnina 9,26.
Egill hlaut ágætiseinkunnina 9,26. Mynd/Kristinn Ingvarsson
Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, brautskráðist með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands um síðustu helgi og hlaut ágætiseinkunnina 9,26. Um er að ræða hæstu meðaleinkunn sem gefin hefur verið í MBA-náminu til þessa.

Fram kemur í frétt á vef Háskóla Íslands að á lokakvöldi MBA-námsins hafi Egill hlotið viðurkenningu fyrir það að vera sá nemandi sem hópurinn lærði mest af í náminu. Samtals útskrifuðust 39 manns úr náminu um síðustu helgi.

Egill sagðist upplifa að hann nýtti eitthvað úr náminu á hverjum degi. Nám hefði ákveðinn líftíma og nauðsynlegt væri að viðhalda því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×