Erlent

Þriðji æðsti maður Vatíkansins ákærður fyrir kynferðisbrot

Samúel Karl Ólason skrifar
George Pell, kardínáli og fjármálaráðherra Vatíkansins.
George Pell, kardínáli og fjármálaráðherra Vatíkansins. Vísir/AFP
Lögreglan í Ástralíu hefur ákært kardínálann George Pell fyrir margvísleg kynferðisbrot. Hann er í raun fjármálaráðherra Vatíkansins og er talinn vera þriðji valdamesti maður kaþólsku kirkjunnar. Þá er hann náinn ráðgjafi Frans páfa, sem hefur heitið hörðum aðgerðum gegn kynferðisbrotum presta.

Nánar tiltekið hefur Pell verið ákærður í Viktoríuhéraði í Ástralíu, þar sem hann var prestur á áttunda áratuginum. Lögreglan hefur ekki viljað segja hvenær hin meintu brot voru framin, hve mörg fórnarlömbin eru, né hvernig brot um sé að ræða. Ákveðið verður í næstu viku hvort frekari upplýsingar verði veittar

Rannsókn málsins hefur staðið yfir í nokkurn tíma og flugu lögregluþjónar til Rómar í fyrra til að ræða við Pell. Hann hefur ávallt neitað að hafa brotið af sér.

Pell hefur verið skipað að mæta fyrir dómara í Ástralíu þann 18. júlí næstkomandi. Hann hefur neitað ásökununum og í tilkynningu frá talsmanni hans segist Pell hlakka til þess að hreinsa nafn sitt í Ástralíu. Á blaðamannafundi Pell nú í morgun las talsmaður hans upp yfirlýsingu þar sem hann sagði Pell hafa margsinnis í gegnum árin fordæmt öll kynferðisbrot gegn börnum.

ABC í Ástralíu segir hins vegar að hann hafi margsinnis verið gagnrýndur á undanförnum áratugum fyrir meðhöndlun sína á kvörtunum gegn öðrum prestum. Sjálfur segir Pell að hann sé fórnarlamb ófrægingarherferðar.

Hann sagði rannsókn hafa staðið yfir í tvö ár og á þeim tíma hefðu lekar til fjölmiðla verið umfangsmiklir. Þá sagðist Pell hafa orðið fyrir mannorðsmorði og að hann væri ánægður með að fá loksins tækifæri til að verja sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×