Lífið

Druslubókin rauk út

Guðný Hrönn skrifar
Það var fjölmennt í útgáfupartíinu.
Það var fjölmennt í útgáfupartíinu. VÍSIR/EYÞÓR
Í tilefni útgáfu bókarinnar Ég er drusla var haldið útgáfupartí á þriðjudaginn í KEX hostel. Það var fjölmennt í boðinu þar sem viðstaddir virtu fyrir sér bókverkið sem hefur að geyma listaverk, teikningar, greinar, möntrur, ljósmyndir og sögur um ofbeldismenningu og samfélagið.

„Útgáfuboðið gekk ótrúlega vel. Það var stanslaus straumur fólks frá klukkan 18.00 til 21.00,“ segir Hjalti Vigfússon, einn þeirra sem hélt utan um útgáfu bókarinnar. „Ætli það hafi ekki mætt nokkur hundruð manns í heildina. Það var náttúrulega ótrúlega gaman að sjá fólk skoða afrakstur allrar þessarar vinnu,“ segir Hjalti sem er hæstánægður með bókina.

„Ég hef ekki hugmynd um hvað við seldum mörg eintök, ég veit bara að bókin rauk út,“ segir hann og hlær.

Viðstaddir virtu fyrir sér bókverkið.VÍSIR/EYÞÓR
„Það komu yfir 40 einstaklingar að gerð bókarinnar og allir gáfu vinnu sína. Þeir sem eiga verk í bókinni höfðu ekki séð verk hinna og voru að sjá lokaútkomuna í fyrsta sinn í gær. Það var svo innilega gleðilegt að sjá hvað fólk var ánægt og stolt af því hvernig þetta kemur út. Það er einstakt að finna fyrir öllum þessum samhug og vilja fólks til að breyta samfélaginu til hins betra. Þetta gefur okkur náttúrulega aukna orku til að gera gönguna í sumar að þeirra stærstu til þessa. Druslur eru greinilega hvergi nærri hættar að breyta heiminum,“ útskýrir Hjalti. Þess má geta að Druslugangan í ár verður 29. júlí og allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til Druslugöngunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×