Handbolti

Lykilmenn framlengja við nýliðana

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ægir og Víglundur verða áfram í Víkinni.
Ægir og Víglundur verða áfram í Víkinni. myndir/víkingur
Ægir Hrafn Jónsson og Víglundur Jarl Þórsson hafa framlengt samninga sína við nýliða Víkings í Olís-deild karla.

Ægir er reyndasti leikmaður Víkings og hefur verið í lykilhlutverki hjá liðinu undanfarin ár.

Ægir, sem er afar öflugur varnarmaður, lék áður með Val og Fram og varð Íslandsmeistari með báðum félögum.

Víglundur lék áður með Stjörnunni en kom til Víkings fyrir tveimur árum.

Í fréttatilkynningu frá Víkingi segir að félagið leiti nú að liðsstyrk fyrir átökin í Olís-deildinni á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×