Golf

Ólafía spilar á afar krefjandi velli

Þorsteinn Hallgrímsson skrifar
Ólafía á Olympia Fields vellinum.
Ólafía á Olympia Fields vellinum. vísir/friðrik þór
Olympia Fields golfklúbburinn er glæsilegur í alla staði. Klúbbhúsið er stórt og flott, æfingasvæðið eins og best verður á kosið, tveir 18 holu golfvellir (North og South).

Við Friðrik Þór Halldórsson erum komnir hingað til að fylgjast með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttir, okkar fremsta kylfingi.

North völlurinn sem hún glímir við næstu daga er ekkert lamb að leika sér við hann er 6.080 metrar að lengd par 71.

Karginn hefur fengið að vaxa frá því í um miðja síðustu viku og er hann svo þéttur á mörgum stöðum að þó að kylfingar standi um þrjá metra frá boltanum þá sjá þeir hann ekki.

Ólafía Þórunn sagði í viðtali við okkur í gær að betra væri að lenda í glompu heldur en í karganum. Talandi um glompur þá eru þær „aðeins“ 91 á vellinum sem gerir rúmlega fimm glompur að meðaltali á hverri braut. Mikill halli og brot er í flestum flötum og eru margir staðir á flötunum þar sem alls ekki má staðsetja boltann því þá er ekki hægt að pútta nálægt holunni ef púttið er niður á móti eða á hlið.

Hraðinn á flötunum er á milli 12 og 13 á stimpmeter sem er mælieining sem reiknar út hraða á flötum. Fyrir áhugamennina er hægt að segja að flatirnar séu ósanngjarnar vegna hraða þeirra. Brautir eru langar og þröngar og því mikilvægt að hitta þær í teighöggum.

Sem sagt niðurstaðan er sú að Ólafía Þórunn Kristinsdóttir þarf að slá vel af teig, hitta margar flatir, vippa vel og pútta frábærlega til þess að leika vel á fyrsta degi KPMG PGA Championship mótsins.

Golfstöðin sýnir beint frá mótinu og hefst bein útsending klukkan 16:30 í dag.

Það var létt yfir Ólafíu í gær.vísir/friðrik þór

Tengdar fréttir

Faðir Ólafíu segir dáleiðslu hafa reynst henni vel í golfinu

Kristinn J. Gíslason, faðir golfstjörnunnar Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, segir andlegu hlið golfsins mjög mikilvæga. Hann hefur notfært sér dáleiðsluþekkingu sína og hjálpað kylfingum, þar á meðal Alfreði syni sínum, og auðvitað Ólafíu.

Vil sýna hvað ég spila vel

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir heldur áfram að vera brautryðjandi íslenskra kylfinga þegar hún hefur í dag keppni á stórmóti í golfi, fyrst íslenskra kylfinga. Hún hefur fundið fyrir ofþreytu eftir álag síðustu vikna.

Ólafía: Tilfinningin er æðisleg

Stöð 2 Sport er mætt til Chicago og hitti Ólafíu Þórunni Kristinsdóttir degi áður en hún brýtur enn eitt blaðið í íslenskri golfsögu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×