Viðskipti innlent

Flug­menn Icelandair fjöl­menntu á fund WOW air: „Gríðar­leg reiði vegna starfs­manna­stefnunnar innan hópsins“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Jóhann Óskar Borgþórsson, varaformaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og starfandi flugstjóri hjá Icelandair, áætlar að um 150 manns hafi verið viðstaddir kynningarfundinn í gær.
Jóhann Óskar Borgþórsson, varaformaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og starfandi flugstjóri hjá Icelandair, áætlar að um 150 manns hafi verið viðstaddir kynningarfundinn í gær. Vísir/Eyþór
Varaformaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir kjörin sem WOW air kynnti fyrir gestum kynningarfundar félagsins í gær hafa komið sér ánægjulega á óvart. Hann segir flugmenn Icelandair, sem fjölmenntu á fundinn, almennt óánægða með starfsmannastefnu vinnuveitanda síns.

Kynningarfundur WOW air um starfsemi flugfélagsins, sem auglýstur var samhliða nýjum ráðningum, fór fram í gær. Jóhann Óskar Borgþórsson, varaformaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna og starfandi flugstjóri hjá Icelandair, var viðstaddur fundinn.

„Í fljótu bragði held ég að það hafi verið um 150 manns þarna en ég gæti trúað því að vel rúmlega helmingur af þeim hafi verið flugmenn Icelandair,“ segir Jóhann.

Honum sýndist flestir flugmannanna á staðnum hafa verið úr hópi þeirra sem fengu uppsagnarbréf frá Icelandair um helgina. Það hafi þó alls ekki gilt um alla á fundinum, einhverjir viðstaddra hafi verið fastráðnir flugmenn, forvitnir um starfsemi WOW air.

WOW air býður heilsársstörf

En hvað býður WOW air sem Icelandair býður ekki?

„Þeir eru allavega að bjóða upp á heilsársstörf og það er eitthvað sem kollegum mínum, hjá mínu flugfélagi, finnst áhugaverður vinkill,“ segir Jóhann. Hann fékk sjálfur uppsagnarbréf um liðna helgi en hann var einn 70 flugstjóra sem lækkaðir voru í stöðu flugmanns.

Uppsagnir Icelandair um helgina eru liður í árstíðabundinni sveiflu í ferðaþjónustu. Aðspurður hvort flugmönnum sé þetta ekki ljóst þegar þeir hefja störf hjá félaginu segir Jóhann svo vissulega vera. Það breytir því þó ekki að fólk sé langþreytt á stöðunni.

„Fólki er það alveg ljóst þegar það hefur störf að það er árstíðasveifla og fyrirtækið dregur ekkert undan í því. En þó svo að þú vitir af uppsögninni þá er hún samt alltaf sár.“



Frá kynningarfundi WOW air á Nauthóli í Reykjavík í gær.Vísir/Eyþór
„Starfsmannastefna Icelandair hefur beðið skipbrot“

Jóhann segir vanvirðingu Icelandair við skuldbindingu flugmanna sinna stærsta vandamálið. Hann segir fyrirtækið lengi vel hafa verið eina starfsvettvang flugmanna á Íslandi en nú, þegar fleiri eru um hituna, séu flugmenn hættir að sætta sig við viðhorf Icelandair.

„Það sem ég veit að er undirliggjandi hjá mér og í mínum hópi manna sem hóf störf hjá Icelandair árið 2006, það er svona þetta viðhorf félagsins til okkar og stefna þess að skera allt niður að beini,“ segir Jóhann sem hefur fengið átta uppsagnarbréf frá Icelandair á ellefu árum.

„Starfsmannastefna Icelandair hefur beðið skipbrot og er hálfgjaldþrota einhvern veginn, það er almennt viðhorf í hópi flugmanna Icelandair,“ bætir Jóhann við. „Það ríkir gríðarleg reiði vegna starfsmannastefnunnar innan hópsins.“

Jóhann segist sjálfur hafa framtíð sína innan fyrirtækisins til skoðunar. Aðspurður hvort hann telji WOW air ætla að standa við ráðningarnar, sem einhverjir hafa leitt að því líkum að séu aðeins liður í kynningarherferð fyrirtækisins, segir hann svo vera.

„Það var gefið mjög sterklega í skyn að þarna væri nóg pláss fyrir allt og alla.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×