Tíska og hönnun

Sneakertískan í sumar

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Vala Roff er mikil áhugamanneskja um strigaskó og einn álitsgjafa Fréttablaðsins.
Vala Roff er mikil áhugamanneskja um strigaskó og einn álitsgjafa Fréttablaðsins. Vísir/Stefán
Lífið fékk til sín nokkra strigaskógeggjara til að leggja línurnar í skótísku fyrir sumarið. Útlit, þægindi og notkun í sem flestum aðstæðum eru meðal þeirra kosta sem álitsgjafarnir voru beðnir að dæma eftir. Nike, Adidas og Gucci virðast vera merki sumarsins.

Vala Roff, sneaker-áhugakona

Nike Air VaporMax

Glænýtt módel frá Nike sem hefur verið lengi á teikniborðinu. Ferskir og munu eflaust koma sterkir inn í sumar.

Gucci Ace

Þar sem kreppa er yfirvofandi og hver einasti unglingur landsins virðist eiga að minnsta kosti eina Gucci flík spái ég skóm frá þeim vinsældum í sumar.

Stan Smith PK boost

Klassíski Stan Smith með nýju twisti. Primeknit upper og boost sóla, léttir og þægilegir í sumar.



Bergur Guðnason segir Vans Old Skool passa við allt og hann myndi persónulega klæðast þeim og engu öðru. Vísir/Eyþór

Bergur Guðnason, fatahönnuður

Vans Old Skool

Skór sem alltaf hægt er að hoppa í, skiptir ekki máli hvað tilefnið er eða hvernig þeir eru notaðir. Víðar buxur, þröngar buxur, stuttbuxur, jakkaföt, nakinn. Þessir skór ganga við allt.

Gucci Slip-On Loafer

Algjörlega stand out skór hjá Gucci. Ef þessir skór eru notaðir rétt eru þeir virkilega flottir annars er mjög auðvelt að klúðra hverju maður myndi klæðast við þá. Alls ekki fyrir alla!

Nike Flyknit Racer

Léttur og þæginlegur skór sem andar vel. Mæli með að ganga með tannbusta bakvið eyrað til öryggis ef einhver skildi taka upp á því að stíga á mann.

Pétur Kiernan gefur ekkert fyrir það að kalla Gucci flip flops inniskó.Vísir/Ernir

Pétur Kiernan, áhugamaður um tísku

Adidas Ultra Boost

Voru mjög vinsælir í fyrra sumar, munu halda sínum vinsældum áfram einfaldlega útaf úrvalinu og hversu ótrúlega comfy þeir eru.

Nike Air Force 1 Low

Timeless Piece. Stílhreinir, þægilegir og ódýrir. Hægt að leika sér aðeins og tússa á þá eða kaupa þá með embroidery (til dæmis @frecustoms á Instagram).

Gucci Flip Flops

Algjör misskilningur að þetta séu bara inniskór og þægilegri en þú heldur. JÁ TAKK.



Sigríður Margrét finnst Converse útgáfa Commes des Garçons alltaf vera ákaflega sumarleg.Vísir/Eyþór

Sigríður Margrét, bloggari á Trendnet.is

Nike Air Force 1

Þessir eru fullkomnir fyrir sumarið - hef alltaf verið mikið fyrir hvíta sneakers það er eitthvað svo sumarlegt við þá.

Nike Air VaporMax

Þessir eru mjög sérstakir! Ég er mjög hrifin af flyknittinu.

Comme des Garçons PLAY x Converse Chuck Taylor

Þessir eru frá samstarfinu Comme des Garçons X Converse en mér finnst þeir alltaf vera sumarlegar.



Hér fyrir neðan má fletta myndasafni með skónum sem álitsgjafarnir nefndu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×