Formúla 1

Lewis Hamilton vann í Kanada

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton sigldi auðan sjó að mestu leyti í allan dag.
Lewis Hamilton sigldi auðan sjó að mestu leyti í allan dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í kandadíska kappakstrinum. Valtteri Bottas á Mercedes varð annar og Daniel Ricciardo varð þriðji á Red Bull.

Með því að vinna tryggði Hamilton sér 25 stig. Hann er þá einungis 12 stigum á eftir Sebastian Vettel í heimsmeistarakeppni ökumanna.

Max Verstappen átti ógnar hraða ræsingu og stakk sér fram úr báðum Ferrari mönnum ásamt Valtteri Bottas. Hann vann sig upp um þrjú sæti frá ráslínu og í gegnum fyrstu beygju.

Carlos Sainz gerði sig sekan um mistök á fyrsta hring. Hann keyrði á Romain Grosjean á Haas bílnum og skautaði svo stjórnlaus á Felipe Massa sem var saklaust fórnarlamb í atburðarásinni en Massa og Sainz gátu ekki haldið áfram.

Öryggisbíllinn var kallaður út og var inn á brautinni í fimm hringi.

Vettel kom inn á sjötta hring þegar í ljós kom að framvængurinn var brotinn á bíl hans. Skaðinn skeði þegar Verstappen stakk sér fram úr Vettel á fyrsta hring.

Stafræni öryggisbíllinn var svo kallaður út þegar Red Bull bíll Verstappen stöðvaðist á brautinni. Bíllinn missti einfaldlega afl. Verstappen var annar þegar hann féll úr leik.

Sebastian Vettel á brautinni í Kanada. Hann þurfti að hafa mikið fyrir fjórða sætinu í dag.Vísir/Getty
Bottas kom inn á 24. hring og tók Esteban Ocon á Force India við öðru sætinu, Ocon átti á þeim tímapunkti eftir að taka þjónustuhlé.

Vettel vann sig upp þétt og örugglega eftir langt þjónustuhlé á sjötta hring. Þegar 30 hringjum var lokið var Vettel orðinn sjöundi á eftir liðsfélaga sínum Raikkonen.

Ocon kom inn á 33. hring og fékk ofurmjúk dekk undir. Hann kom út á milli Ferrai manna í sjötta sæti. Ricciardo var þá orðinn þriðji á Red Bull bílnum.

Raikkonen tók sitt annað þjónustuhlé á hring 42. Hann tapaði tveimur sætum á stoppinum. Raikkonen tók últra-mjúk dekk undir.

Vettel kom inn á þjónustusvæðið í annað sinn og fékk últra-mjúk dekk undir. Vettel missti einungis Raikkonen fram úr sér.

Vettel komst svo fram úr Force India ökumönnunum. Það verður einhver eftirmáli af þessu innan Force India liðsins. Ocon taldi sig eiga möguleika á að ná hærra í röðinni.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton á ráspól í Kanada

Lewis Hamilton á Mercedes verður á ráspól í kanadíska kappakstrinum í Formúlu 1 sem fer fram á morgun. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari og Valtteri Bottas varð þriðji á Mercedes.

Hamilton: Þetta var einn kynþokkafullur hringur

Lewis Hamilton á Mercedes nældi sér í ráspól í dag með frábærri frammistöðu í Kanada. Hann náði sér einmitt í sinn fyrsta ráspól á ferlinum í Kanada fyrir 10 árum síðan. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×