Fótbolti

Ragnar um pítsumyndina: „Ég varð að gera þetta“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ragnar Sigurðsson heilsar Króötunum fyrir leikinn.
Ragnar Sigurðsson heilsar Króötunum fyrir leikinn. Vísir/Ernir
Ragnar Sigurðsson, miðvörður Íslendinga, notaði bæði Laugardalsvöllinn og samfélagsmiðla til þess að þagga niður í þeim sem töldu hann ekki vera í nægilega góðu formi til að mæta Króatíu í undankeppni HM í kvöld.

Miðvörðurinn sterki fékk fá tækifæri með Fulham á liðnu tímabili og spilaði síðast fyrir liðið í apríl. Óttuðust því sumir að leikur gegn sterku liði Króata gæti verið of mikið fyrir Ragnar.

Hann lét þó verkin tala inn á vellinum í hjarta varnarinnar sem hélt hreinu og var lítið sem ekkert opnuð af töframönnunum á miðjunni hjá Króatíu. Ragnar keyrði punktinn heim á Instagram-síðu sinni þar sem hann sést fagna með bjór og pizzu í hönd undir yfirskriftinni „Formið var víst lagi.“

Ragnar Sigurðsson með húmorinn í lagi eftir sigurinn á Króötum í kvöld.Instagram-síða Ragnars @sykurson
„Mér fannst ég verða að gera þetta. Það þýðir ekkert að stressa sig allt of mikið. Við erum allir atvinnumenn og þó svo við séum ekki að spila erum við alltaf í formi,“ segir Ragnar í samtali við Vísi um myndina góðu.

Ragnar var ekki eini leikmaður landsliðsins sem menn höfði áhyggjur af fyrir leikinn vegna meiðsla og lítils spilatíma en Ragnar segir að það hafi bara ekki áhrif hjá þessu landsliði.

„Alltaf þegar við komum í landsliðið erum við tilbúnir,“ segir Ragnar sem benti þó blaðamönnum á að liðsfélagar hans þurftu að bjarga honum í eitt skipti.

„Þeir fengu eiginlega eitt færi þegar ég rann á rassgatið þarna. Ég veit ekki alveg hvað gerðist en þá spiluðu þeir í svæðið sem ég skildi eftir mig. Þetta eru augnablikin þar sem liðsfélagarnir þurfa að bjarga mér og þeir gerðu það,“ segir Ragnar.

Fer í langþráð sumarfrí

Hann segir að þéttleiki og liðsheildin hafi skapað sigurinn gegn ógnarsterku liði Króata.

„Þeir eru ógeðslega góða gaura þarna. Það er enginn sem kemst nálægt Modric þegar hann er með boltann og Kovacic sólaði upp allan völlinn einu sinni. Við vorum með betri liðsheild en þeir og það er það sem skiptir máli í svona fótboltaleik.“

Fyrir leik var rætt um mögulegt vanmat Króata á Íslendingum en Ragnar er á því að slíkt hafi ekki verið hendi hjá leikmönnum Króatíu.

„Mér fannst þeir vera tilbúnir í þetta. Ég sá að Modric var pirraður og ég held að þeir hafi alveg verið tilbúnir. Þeir hafa engar afsakanir og við tókum þá í dag enda var kominn tími til,“ segir Ragnar.

Þetta var fyrsti sigur Íslands á Króatíu í fjórðu tilraun en liðin hafa undanfarin ár háð mikla baráttuleiki þar sem mikið er undir. Þangað til nú hefur Króatía haft betur, það spilaði sína rullu í kvöld.

„Við vorum orðnir mjög pirraður á því að tapa endalaust gegn þessum Króötum. Við vissum að við gætum unnið þá en að það gæti orðið erfitt,“ segir Ragnar sem fer nú tiltölulega áhyggjulaus í sitt fyrsta sumarfrí frá árinu 2015.


Tengdar fréttir

Heimir: Þetta var svo asnalegt mark

Heimir Hallgrímsson kom brosandi til móts við blaðamenn á fundi eftir 1-0 sigurinn í Laugardalnum í dag. Hörður Björgvin Magnússon skoraði sigurmarkið undir lok venjulegs leiktíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×