Golf

Rose: Þarf að byrja vel og hafa hausinn í lagi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Justin Rose.
Justin Rose. vísir/getty
US Open í golfi hefst í vikunni og bestu kylfingar heims eru allir mættir á Erin Hills þar sem mótið fer fram.

Ólympíumeistarinn Justin Rose var fyrsti Bretinn í 43 ár til þess að vinna mótið er hann kom í hús á besta skorinu árið 2013.

„Ég hef verið að spila síðustu tvo hringina á stórmótunum mjög vel síðan 2010 en ég þarf að koma mér í betri stöðu fyrir síðustu hringina,“ sagði Rose.

„Það má ekki láta neitt fara í taugarnar á sér eins og sumir strákarnir gera er þeir kvarta yfir völlunum. Þetta er sérstakur golfvöllur og bandaríska golfsambandið er óhrætt við að bjóða upp á óhefðbundna velli. Maður verður bara að taka því og spila. Þetta hugarfar hjálpaði mér er ég vann mótið 2013. Hausinn þarf því að vera í lagi og ég verð að byrja vel.“

US Open er eina stórmótið sem Rose hefur unnið en hann var næstum búinn að vinna Masters fyrr á árinu er hann tapaði í umspili gegn Sergio Garcia.

Mótið hefst á fimmtudag og verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×