Fótbolti

Costa sagður vilja fara til Juve

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Costa í leik með Bayern.
Costa í leik með Bayern. vísir/getty
Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum þá hefur Brasilíumaðurinn Douglas Costa beðið Juventus um að kaupa sig frá Bayern.

Umboðsmaður Costa fundaði með forráðamönnum Juve í gær þar sem þessum skilaboðum var komið á framfæri.

Inter hefur einnig áhuga á Costa en leikmaðurinn hefur engan áhuga á Inter og vill fara til Juve.

Þar sem Costa er samningsbundinn Bayern til 2020 þá verður Juve að kaupa hann. Bayern er sagt vilja fá 50 milljónir evra fyrir leikmanninn en Juve vill helst ekki greiða meira en 35 milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×