Skoðun

Viðskiptaforskot með smörtustu píunni

Ingibjörg Gréta Gísladóttir skrifar
Danir hafa verið sérlega sniðugir og framsýnir þegar kemur að stuðningi við skapandi greinar. Þannig lýsti Mads Mikkel­sen í viðtali við Fréttablaðið fyrir stuttu hve dönsk yfirvöld hafa stutt við danskar kvikmyndir með markvissum hætti, að sá stuðningur sé enn til staðar og haldist stöðugur. „Fyrir vikið eru danskar kvikmyndir gríðarlega sterkar á alþjóðlegum mörkuðum og þó það sé munur á milli ára þá eru þetta einfaldlega öflug viðskipti.“

En stuðningurinn á ekki bara við um kvikmyndir því danska ríkið hefur einnig lagt töluverða fjármuni í fyrirtæki sem taka hönnun inn í stefnu sína og viðskiptamódel. Þannig þróaði danska hönnunarmiðstöðin árið 2001 Hönnunarstigann, fjögur þrep af hönnunarnotkun, en hann mælir hvernig dönsk fyrirtæki nýta sér hönnun til fjárhagslegs árangurs.

Fyrsta þrepið merkir að engin hönnun sé sýnileg í fyrirtækinu, enginn faglærður hönnuður með í vöruþróun eða annarri þróun innan fyrirtækisins. Öðru þrepi er náð þegar hönnun er tekin inn í lokaútgáfu vöru eða þjónustu, til dæmis þar sem grafískur hönnuður kemur að markaðsvinnunni. Þriðja þrepinu nær það fyrirtæki sem nýtir hönnun frá fyrstu stigum þróunarferlisins þar sem lausnin snýst um að leysa vandamál viðskiptavinarins sem hefur í för með sér aðkomu allra fagaðila.

Fjórða þrepinu ná hins vegar þau fyrirtæki sem hafa mótað sér hönnunarstefnu þar sem hönnuðir vinna með eigendum og framkvæmdastjórn að viðskiptamódelinu frá upphafi eða eru þátttakendur í að endurhugsa það frá grunni. Hér er einblínt á aðferðafræði hönnunar og að hún sé hluti af sýn fyrirtækisins og markmiðasetningu – jafnt á við aðra hlekki í virðiskeðju fyrirtækisins.

Niðurstaða rannsóknar um efnahagsleg áhrif hönnunar sýnir að þau fyrirtæki sem fjárfesta kerfisbundið í hönnun ná meiri fjárhagslegum árangri að meðaltali, vaxa hraðar, flytja meira út og hagnast meira en þau sem ekki nýta sér aðferðafræði hönnunar. Þess vegna settu Danir fjármagn í að aðstoða fyrirtæki sem nýttu sér hönnun, svo þau kæmust upp um þrep í hönnunarstiganum og skiluðu meiri hagnaði. Einföld og öflug viðskipti.

Hönnun er nefnilega smartasta pían á ballinu.




Skoðun

Sjá meira


×