Tónlist

Brot af Brooklyn í Laugardalnum

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Young M.A. átti smell sumarsins í fyrra með lagi sínu OOOUUU, þannig að það verður stuð í dalnum á sunnudaginn.
Young M.A. átti smell sumarsins í fyrra með lagi sínu OOOUUU, þannig að það verður stuð í dalnum á sunnudaginn.
Rapparinn Young M.A. skaust inn á sjónarsviðið í kjölfar þess að hún gaf út ofursmellinn OOOUUU síðasta sumar. Hún hefur helst vakið athygli fyrir að ylja gömlum rapphausum um hjartaræturnar með augljósum New York áherslum - en gamla höfuðborg rappsins hefur fengið að víkja fyrir Atlanta þar sem hlutirnir gerast nú í rappheiminum. Henni tekst að vera New York án þess þó að detta í algjöra nostalgíu og nær því að fanga nokkra strauma og stefnur rappsins í einu. Einnig hefur hún vakið athygli fyrir að fjalla opinskátt um samkynhneigð sína án þess að hafa verið ýtt inn í einhverskonar „samkynhneigt rapp“ box eins og vill gerast - eins og le1f og sissy bounce-ið frá New Orleans og fleira. Aðallega er hún samt þekkt fyrir að vera helvíti góður rappari.



Getur þú sagt lesendum Fréttablaðsins sem þekkja þig kannski ekki hver Young M.A. er eiginlega?


„M.A. stendur fyrir Me Always [ávallt ég sjálf]. Ég byrjaði að rappa þegar ég var 9 ára og hef síðan þá ávallt verið ég sjálf. Þegar ég loksins varð örugg í eigin skinni var það auðvelt fyrir mig að tjá mig um eigin reynslu í tónlist minni.“

Veistu eitthvað um Ísland?

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég ferðast til Íslands og ég er ákaflega spennt að sjá landið. Myndböndin sem ég hef séð af Secret Solstice hátíðinni segja mér að Íslendingar séu mikil partí-þjóð. Það lítur út fyrir að það verði brjáluð stemming!“

Áður en þú varðst fræg, hafðir þú þá einhvern tíma ímyndað þér að þú myndir einn daginn ferðast til fjarlægra landa eins og Íslands? Hver er áhugaverðasti staður sem þú hefur komið á á ferlinum?

„Ég er mjög sjálfsörugg manneskja, þannig að ég hef ávallt haft tröllatrú á því að tónlistin mín myndi fara með mig um allan heim og ég hef verið bænheyrð og er nú bókuð um heim allan. Ég verð að eilífu þakklát aðdáendum mínum, stuðningsfólki og sérstaklega þeim sem hafa verið með mér frá byrjun. Ég hef lent í að minnsta kosti tvisvar lent í frekar undarlegri reynslu á tónleikaferðalagi: ég spilaði einu sinni í El Paso og allir voru töluvert hressari en ég bjóst við og svo í Kanada – þar voru allir gjörsamlega trylltir og ég held að bjórinn þar sé öðruvísi eða eitthvað, þetta var alveg ótrúlegt dæmi.“

Í viðtölum okkar við aðra listamenn sem munu koma fram á Secret Solstice hátíðinni nefndu flestir að þeir væru frekar hræddir við að missa svefn vegna miðnætursólarinnar – hefur þú áhyggjur af því og ertu búin að pakka niður myrkvunartjöldum? 

„Þetta „ruglaði“ í mér í Kanada. Ég held að ég hafi verið í Winnipeg og klukkan var hálf ellefu og sólin var bara enn á lofti. Ég hef verið að grínast með það að sólin hljóti að vera að vinna aukavinnu til að gefa börnunum að borða. Ég mun samt stoppa stutt og það kann að vera að ég sleppi því að sofa – þannig að ég er spennt fyrir því að sólin hangi með mér.“

Ef þú þyrftir að lifa með því að það væri bjart allan sólarhringinn – hvað myndir þú gera? 

„Kampavín í morgunmat á ströndinni, Mótorhjólarúntur í sveitinni, Nudd, stúdíóið, sjávarfang í kvöldmat, strippklúbbur.“

Við hverju geta gestir Solstice hátíðarinnar búist af þér? 

„Ég er að fara að „turn up“ fyrir Ísland þann 18. júní! Ég hlakka til að koma með Brooklyn-stemminguna í miðnætursólina.“

Hvað er næst hjá Young M.A. og hvenær kemur næsta OOOUUU sem við öll sem þekkjum þig erum að bíða eftir? 

„Ég gaf út EP plötuna „Herstory“ í apríl og ég er alltaf í stúdíóinu þessa dagana að vinna að minni fyrstu plötu í fullri lengd, en hún ber titilinn „Herstory in the making“. Sú plata verður full af afar persónulegri tónlist og ég get ekki beðið eftir því að sýna heiminum þetta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×