Glamour

Stórkostlegar breytingar í tískuheiminum á stuttum tíma

Ritstjórn skrifar
Myndir/Kári Sverriss
„Það er búið að vera stórkostlegt að fylgjast með þessum breytingum undanfarin tvö ár. Ég hef verið á hliðarlínunni en samt fylgst vel með og get fullyrt að það hefur aldrei verið jafnmikil fjölbreytni í tískuheiminum þegar kemur að fyrirsætuvali og jákvæðri vakningu gagnvart ólíkum líkamsgerðum eins og núna,“ segir fyrirsætan Inga Eiríksdóttir í viðtali í nýjasta tölublaði Glamour sem kom út í dag. 

Inga prýðir forsíðu 26 tölublaðs Glamour í gullfallegum myndaþætti sem var gerður af úrvals íslensku teymi. Ljómyndari var Kári Sverriss, stílisti Ellen Lofts og förðun og hár í höndunum á Guðbjörgu Huldísi Kristinsdóttur með MAC. 

Fyrir tveimur árum leiddi Inga byltingu í fyrirsætuheiminum ásamt kollegum sínum í Alda Women, þar sem þær beittu sér fyrir jákvæðri vakningu fyrir bættri líkamsímynd í tískuheiminum. Berrassaðar á húsþökum í New York í gullfallegri myndatöku hjá Silju Magg hófu þær vitundarvakningu út um allan heim. Þá var Inga komin stutt á leið að sínu fyrsta barni, Emmu Lóu, sem nú er tveggja ára en hún á nú tvær litlar stelpur ásamt sambýlismanni sínum, Joshua Kessler.

„Fleiri hópar, svipaðir og Alda-hópurinn, hafa verið að poppa upp úti um allan heim og fá athygli. Það að hafa meiri fjölbreytni er nú orðið meira norm. Það er minni þörf á að flokka fyrirsætur eftir kynþætti eða stærð sem er mjög jákvæð þróun og nákvæmlega það sem við höfum verið að berjast fyrir,“ segir Inga. 

Inga talar um fyrirsætuheiminn, móðurhlutverkið og nýjustu ástríðuna, sjálfbærnu og aukin umhverfisvitund í heiminum við júníblað Glamour, sem er á leiðinni til áskrifenda núna og verður komið upp í allar verslanir fyrir helgi. 

Tryggðu þér áskrift af Glamour hér. 






×