Erlent

Segir Breta ekki geta búist við sömu fríðindum innan ESB hætti þeir við Brexit

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Guy Verhofstadt.
Guy Verhofstadt. Vísir/EPA
Breskum stjórnvöldum er frjálst að breyta um stefnu og hætta við Brexit en þau geta ekki búist við því Bretland fái að njóta sömu fríðinda í sambandinu líkt og áður. Þetta segir Guy Verhofstadt, þingmaður Frjálslyndra demókrata á Evrópuþinginu. Guardian greinir frá.

Verhofstadt lét ummælin falla þegar hann var spurður út í skoðun sína á orðum Emmanuel Macron, Frakklandsforseta, þar sem hann sagði að dyr Evrópusambandsins standi Bretum opnar, snúist þeim hugur um Brexit.

„Ég er sammála því, en líkt og hjá Lísu í Undralandi eru ekki allar dyrnar eins. Það yrði glæný hurð, með nýrri Evrópu, Evrópu án greiðsluívilnana, án flækju, með alvöru völd og alvöru samheldni.“

Meðal ívilnanna sem Verhofstadt á við eru meðal annars greiðsluívilnanir til handa breskum stjórnvöldum sem ríkisstjórn Margaret Thatcher samdi um á níunda áratugnum og veita breskum stjórnvöldum rétt á að greiða minna í sameiginlega sjóði Evrópusambandsins en aðrar þjóðir.

Verhofstadt er meðal þeirra þingmanna sem hve harðast hefur lagst gegn því að Bretar njóti slíkra fríðinda en málið hefur löngum verið umdeilt innan Evrópusambandsins og telja flestir að málið hefði verið endurskoðað ef Bretar hefðu ekki samþykkt Brexit.

Þá hefur Bretland einnig ávallt haldið gjaldmiðli sínum aðskildum frá evrunni og breskum stjórnvöldum hefur jafnframt verið gert kleyft að velja og hafna ýmsum löggjöfum sambandsins sem varða löggæslumál.

Sá ráðahagur hefur lengi farið í taugarnar á ýmsum stjórnmálamönnum líkt og Verhofstadt innan sambandsins, því þeir telja þetta flækja sambandið um of. Fari svo að Bretar ákveði að hætta við Brexit verða þeir að sætta sig við að gefa upp slík fríðindi.

Þá er Verhofstadt sammála forseta Frakklands um að málin flækist töluvert um leið og Bretar yfirgefi sambandið. Þeir geti ekki svo auðveldlega orðið aðilar að sambandinu aftur, heldur verði þeir að sækja um aðild eins og allir aðrir, vilji þeir það á annað borð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×