Viðskipti innlent

Hlutabréfaeign almennings aldrei minni

Hörður Ægisson skrifar
Markaðsvirði skráðra hlutabréfa í Kauphöllinni er samtals um 1.200 milljarðar króna.
Markaðsvirði skráðra hlutabréfa í Kauphöllinni er samtals um 1.200 milljarðar króna. Vísir/Stefán
Bein hlutabréfaeign íslenskra heimila í skráðum félögum nemur samtals um 49 milljörðum króna, eða aðeins um fjórum prósentum af heildarmarkaðsvirði fyrirtækja í Kauphöllinni, og hefur hlutfallið ekki verið lægra í að minnsta kosti fimmtán ár.

Þannig hefur hlutafjáreign heimila farið hlutfallslega lækkandi á undanförnum árum samhliða endurreisn íslensks hlutabréfamarkaðar en á árunum fyrir fall fjármálakerfisins átti almenningur að jafnaði á bilinu samanlagt um 12 til 17 prósent af markaðsvirði skráðra hlutabréfa, að því er fram kemur í gögnum sem Kauphöllin tók saman fyrir Fréttablaðið.

Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir það vera „ákveðið heilbrigðismerki“ að almenningur sé virkur í fjárfestingum á hlutabréfamarkaði og því sé þessi þróun „áhyggjuefni“. Hann telur þetta til marks um að „við séum ennþá á þeim stað að þurfa að byggja upp traust gagnvart markaðnum“ auk þess sem almenningur hafi á síðustu árum hugsanlega fremur kosið að ráðstafa sparnaði sínum til fjárfestinga í fasteignum í stað hlutabréfa.

Páll segir það vera "ákveðið heilbrigðismerki“ að almenningur sé virkur í fjárfestingum á hlutabréfamarkaði.Vísir/Stefán
Páll segist hins vegar hafa væntingar um að með aukinni velmegun og minni verðhækkunum á fasteignamarkaði munum við sjá meiri áhuga almennings á því að fjárfesta í hlutabréfum, einkum og sér í lagi þegar stóru viðskiptabankarnir verði skráðir á markað. Hann telur engu að síður ólíklegt að eignarhald almennings á skráðum hlutabréfum verði í líkingu við það sem þekktist frá aldamótum og fram að hruni.

Lífeyrissjóðir áttu í maí um 40 prósent allra skráðra hlutabréfa í Kauphöllinni. Hlutabréfaeign einkafjárfesta í gegnum eignarhaldsfélög nemur tæplega 20 prósentum af markaðsvirði skráðra fyrirtækja á meðan hlutdeild erlendra fjárfesta er um 18 prósent.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×