Lífið

Heiðrar heimabæinn með flennistóru flúri

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Herra Hnetusmjör elskar Kópavoginn meira en Gunnar Birgisson.
Herra Hnetusmjör elskar Kópavoginn meira en Gunnar Birgisson. Vísir/Anton Brink
„Ég og Joe Frazier vorum í galsa fyrir svona tveimur vikum og mér datt þetta svona í hug í djóki – út af því að Tupac var með Thug Life á maganum. Og svo einhvern veginn varð þetta bara að veruleika á mjög stuttum tíma,“ segir Kópavogsbúinn Herra Hnetusmjör, en hann fékk sér á þriðjudaginn flennistórt „Kóp Boi“ tattú þvert yfir magann á sér.

Eins og hann segir er húðflúrið í svipuðum stíl og hið víðfræga Thug Life flúr sem rapparinn Tupac fékk sér á sínum tíma, en það er líklega ofarlega á lista yfir frægustu húðflúr allra tíma. Flúrið fékk Hnetusmjör á stofunni Reykjavík Ink og var það flúrarinn Ryan Campbell sem sá um að teikna þennan ódauðlega óð til Kópavogsbæjar á húð rapparans.

Goðsögnin Tupac skreytti sig með orðunum Thug Life.
Herra Hnetusmjör hefur ekki verið feiminn við að heiðra heimabæ sinn, Kópavog, í gegnum tíðina en hann gerði meðal annars smellinn 203 stjórinn á síðasta ári, en útvarpsþátturinn Kronik valdi það fimmta besta íslenska rapplag ársins 2016, þar sem hann vísar til póstfangsins 203 í Kópavogi.

Herra Hnetusmjör spilar á Secret Solstice hátíðinni, í Valhöll, stóra sviðinu, á sunnudaginn klukkan hálf fjögur. Þar hitar hann upp fyrir ekki ómerkari listamenn en Rick Ross, Big Sean, Anderson Paak og Young M.A. Það er því eins gott að hann sé kominn með gott flúr til að sýna áhorfendum.

„Það er náttúrulega Rick Ross og allt íslenska rappið,“ svarar Herra Hnetusmjör þegar hann er spurður að því hverju hann sé spenntastur fyrir á Solstice.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×