Viðskipti innlent

Ætla sér að endurnýja allan ísfisktogaraflotann

Atli Ísleifsson skrifar
Skipin sem um ræðir eru Barði NK, Gullver NS, Vestmannaey VE og Bergey VE.
Skipin sem um ræðir eru Barði NK, Gullver NS, Vestmannaey VE og Bergey VE. Síldarvinnslan
Síldarvinnslan hyggst endurnýja allan ísfisktogaraflota sinn á næstu árum. Þetta kom fram á aðalfundi fyrirtæksins sem haldinn var síðasta föstudag.

Skipin sem um ræðir eru Barði NK, Gullver NS, Vestmannaey VE og Bergey VE. Í frétt á vef fyrirtækisins segir að togararnir Barði og Gullver séu gerðir út af Síldarvinnslunni en Vestmannaey og Bergey af dótturfélaginu Bergur-Huginn.

„Barði NK var smíðaður árið 1989, Gullver árið 1983, en Vestmannaey og Bergey árið 2007.

Gunnþór B. Ingvason framkvæmdastjóri segir að undirbúningur hafi hafist þegar á síðasta ári.  þegar sé hafinn. „Sem liður í þessari endurnýjun var Bjartur NK seldur á síðasta ári til Íran og um þessar mundir er unnið að sölu á Barða NK til Rússlands. Blængur NK, áður Freri RE, hefur verið endurbyggður sem öflugur frystitogari og var hann tekinn í notkun fyrr á þessu ári.

Hvað varðar söluna á Barða þá mun myndast eitthvað tómarúm frá sölunni og þar til nýtt skip kemur og verður leitast við að bjóða sjómönnunum sem lenda í slíku millibilsástandi störf á öðrum skipum félagsins eða í landi auk þess sem aðrar lausnir verða skoðaðar,“ er haft eftir Gunnþóri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×