Matur

Í eldhúsi Evu: Steikarloka með chili bernaise-sósu

Eva Laufey skrifar
Þessi er kjörin fyrir þá sem vilja gera sér dagamun.
Þessi er kjörin fyrir þá sem vilja gera sér dagamun. Eva Laufey

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að girnilegri steikarloku.

Steikarloka með chili bernaise-sósu

Baguette brauð

Nautakjöt, má vera hvaða bita sem er (eldaður)

Sveppir

Laukur

Hvítlaukrif

Smjör

Klettasalat

Bernaise sósa (uppskrift að neðan)

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C.

Skerið sveppi og lauk, steikið upp úr smjöri á pönnu þar til laukurinn er orðinn mjúkur í gegn. Geymið til hliðar á meðan þið undirbúið brauðið.

Skerið baguette brauð í tvennt og hitið í ofni í smá stund þar til brauðið er gulliðbrúnt. Smyrjið bernaise sósu á botninn á baguette brauðinu, leggið salatblöð yfir bernaise sósuna, skerið niður nautakjöt og leggið ofan á ásamt steiktum sveppum og lauk. Í lokin setjið þið væna skeið eða skeiðar af bernaise sósunni yfir og leggið lokið á baguette brauðinu yfir.

Berið strax fram og njótið.

Chili bernaise sósa

5 stk eggjarauður

250 g smjör

1 msk bernaise essence

2 tsk fáfnisgras, smátt saxað (2-3 tsk.)

½ rautt chilialdin

salt og nýmalaður pipar



Aðferð:

Þeytið eggjarauður yfir vatnsbaði og bætið smjörinu smám saman við, þetta er svolítil handavinna en er vel þess virði.

Ef skálin er of heit takið þið hana af vatnsbaðinu og kælið en haldið alltaf áfram að hræra. Það er mjög mikilvægt að skálin sé ekki of heit því annars eldast eggjarauðurnar.

Saxið niður ferskt fáfnisgras og rautt chilialdin, setjið út í sósuna og bragðbætið einnig með bernaise essence, salti og pipar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×