Erlent

Pútín býður James Comey pólitískt hæli í Rússlandi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Vladimír Pútín.
Vladimír Pútín. Vísir/EPA
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að James Comey, fyrrverandi forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar FBI, sé velkomið að fá pólitískt hæli í Rússlandi kjósi hann svo. CNN greinir frá.

Forsetinn lét ummælin falla í árlegum fyrirspurnartíma í sjónvarpinu í Rússlandi í gær, þar sem áhorfendum bauðst að hringja inn í þáttinn og spyrja Pútín spjörunum út.

Í fyrirspurninni um James Comey og mál hans svaraði Pútín með kaldhæðnum hætti.

„Hvað gerir forstjórann svo frábrugðinn Hr. Snowden? Mér virðist hann ekki vera forstjóri alríkislögreglunnar heldur aðgerðasinni sem hefur sína tilteknu skoðun. Ef hann verður ákærður vegna þessa, erum við líka reiðubúin til þess að veita honum pólitískt hæli.“

Comey mætti í síðustu viku fyrir þingnefnd bandarísku öldungadeildarinnar og svaraði spurningum varðandi samskipti sín við Donald Trump, Bandaríkjaforseta, sem líkt og flestir vita rak Comey úr embætti. Þar lýsti hann til að mynda óþægilegum samskiptum sínum við Trump, sem spurði hann hvort að hann gæti ekki látið rannsókn á máli fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafans Michael Flynn niður falla. 

Edward Snowden fékk pólitískt hæli í Rússlandi árið 2013 eftir að hafa lekið mikilvægum gögnum frá NSA, þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna til almennings en bandarísk stjórnvöld hafa allar götur síðan viljað hafa hendur í hári hans vegna þess. Var ákvörðun Rússa um að veita honum hæli ekki til þess að létta á samskiptum ríkjanna. 

Margir hafa velt vöngum yfir því hvort að uppátæki Pútíns og ákvörðun hans um að svara spurningum rússnesku þjóðarinnar séu viðbrögð við mótmælum í landinu en á þriðjudaginn voru 1400 manns handteknir fyrir að mótmæla spillingu í landinu.

Í fyrirspurnatímanum svaraði Pútín meðal annars spurningum um börn sín, sem hann sagði lifa eðlilegu lífi. Þá sagði hann að ef að Rússar hefðu ekki innlimað Krímskaga, „hefðu Vesturlönd líkast til fundið aðrar ástæður til þess að halda Rússum niðri.“

Pútín tók við völdum á ný sem forseti Rússlands árið 2012 og hófst þá hans þriðja kjörtímabil. Þar áður var hann forsætisráðherra í ríkisstjórn Dmitry Medvedev frá árinu 2008, sem þá var forseti en er nú forsætisráðherra. Þá var hann einnig forseti landsins árin 2000 til 2008.


Tengdar fréttir

Repúblikanar hafna því að Trump hafi hindrað framgang réttvísinnar

Formaður landsnefndar Repúblikanaflokksins sakar sérstakan rannsakanda dómsmálaráðuneytisins um "staðlausar ásakanir“ um að Donald Trump sé til rannsóknar fyrir hindrun á framgangi réttvísinnar. Repúblikanar telja að eini glæpurinn sem hefur verið framinn séu "ólöglegir lekar“.

Trump grípur enn til gervifréttavarnarinnar

Bandaríkjaforseti segir frétt Washington Post um að hann sé til rannsóknar vegna þess að hann kunni að hafa hindrað framgang réttvísinnar sé "gervifrétt“. Reuters hefur hins vegar fengið aðra staðfestingu á frétt blaðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×