Innlent

Gagnrýna hvernig óhollusta er markaðssett til barna

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Brynhildur Pétursdóttir, segir að Neytendasamtökin fylgist vel með málinu.
Brynhildur Pétursdóttir, segir að Neytendasamtökin fylgist vel með málinu. Vísir/Getty/Valli
Neytendasamtökin taka undir með Evrópusamtökum neytenda (BEUC) og kalla eftir því að matvælaframleiðendur hætti að markaðssetja óhollustu til barna með því að nota svokallaðar teiknimyndapersónur. Þetta kemur fram á heimasíðu Neytendasamtakanna.

Ástæðan sé sú að flest matvæli sem auglýst eru með þessum hætti standast ekki þau næringarviðmið sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin setur. BEUC skoðaði stöðuna í þrettán Evrópulöndum og komst að því að framleiðendur nota í miklum mæli slíkar persónur til að ná til barna.

Slík matvæli innihaldi þó mestmegnis hátt hlutfall sykurs, salts og fitu sem ekki ætti með réttu að beina að börnum en samtökin fundu aðeins eina holla vöru sem markaðssett er á slíkan hátt.

Engar tilviljanir þegar kemur að markaðssetningu

Í samtali við Vísi segir Brynhildur Pétursdóttir, ritstýra Neytendablaðsins og starfsmaður Neytendasamtakanna, að samtökin hafi fylgst vel með málinu.

„Það eru engar tilviljanir í þessu. Menn hafa verið að nota slíkar persónur í ríkum mæli. Við erum í evrópska efnahagssvæðinu og allar reglur um merkingu á matvælum eru samevrópskar, svo þetta skiptir okkur miklu máli.“

Við höfum í gegn um tíðina talað mikið gegn óábyrgri markaðssetningu hvað varðar börn. Við höfum fjallað um þessi mál og reynt að vekja athygli verslunarfólks á þeim.“

Foreldrar fylgist vel með

Brynhildur segir að foreldrar þurfi einnig að hugsa sig vel og vandlega um þegar þau fari út í búð og versli vörur handa börnum sínum.

„Sem foreldri þarf maður líka að staldra við og hugsa um þetta. Er Nemópakkinn besti morgunmaturinn fyrir barnið manns? Auðvitað vill barnið Nemópakkinn en stundum verður maður að hugsa betur út í þetta.“

Í tilkynningunni á vef Neytendasamtakanna kemur fram að heilbrigðisráðherrar Evrópusambandsins muni hittast á morgun, föstudaginn 16. júní, til þess að ræða aðgerðir til að takast á við offituvanda barna.

BEUC kalla eftir því að ráðherrarnir tryggi að þær reglur sem settar verði í framtíðinni taki tillit til þeirra áhrifa sem teiknimyndapersónur geta haft á markaðssetningu til barna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×