Körfubolti

Del Piero hitti Henry og skemmti sér konunglega þegar Golden State varð meistari | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Thierry Henry og Del Piero mættust nokkrum sinnum á fótboltavellinum.
Thierry Henry og Del Piero mættust nokkrum sinnum á fótboltavellinum. mynd/skjáskot
Alessandro Del Piero, fyrrverandi leikmaður Juventus og ítalska landsliðsins í fótbolta, skellti sér til Bandaríkjanna á dögunum og sá fimmta leik lokaúrslita NBA-deildarinnar í körfubolta þar sem Golden State fagnaði sigri gegn Cleveland Cavaliers.

Del Piero tók strákinn sinn með sér en upplifun ítalska fótboltagoðsins var fest á filmu og var honum fylgt eftir frá komu í höllina og þar til leiknum var lokið.

Del Piero skemmti sér konunglega og strákurinn líka en þeir feðgarnir hittu Thierry Henry sem var einnig á leiknum að sjá Golden State vinna annan titilinn á þremur árum.

Þetta skemmtilega myndband má sjá hér að ofan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×