Lífið

Þotuhreyflar, já, takk!

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Verkfræðin er tól sem maður getur notað í allt milli himins og jarðar,“ segir Bjarni Örn.
„Verkfræðin er tól sem maður getur notað í allt milli himins og jarðar,“ segir Bjarni Örn. Mynd/Sif Kjærnested
Ég er kominn úr útlegð í bili en fer svo aftur í framhaldsnám,“ segir Bjarni Örn Kristinsson, 24 ára, sem útskrifaðist nýlega með B.Sc. gráðu í flugvéla-og geimverkfræði frá MIT (Massachusetts Institute of Technology) sem samkvæmt QS University Ranking hefur verið besti háskóli heims síðustu ár.

Bjarni Örn er sonur Örnu Sifjar Kærne­sted tölvunarfræðings og Kristins Ragnars Árnasonar fjármálastjóra. Hvers vegna varð flugvéla- og geimverkfræði fyrir valinu hjá honum?

„Í menntaskóla fór ég í skiptinám til Japans í eina önn. Þá opnaðist heimurinn og ég áttaði mig á hvað það er gaman að kynnast fólki frá öllum heimshornum og mér fannst lítið mál að búa erlendis. Stefnan var því fljótt sett á nám erlendis. Á endanum stóð MIT upp úr. Það var ekki aðeins námið, heldur menningin og fólkið í skólanum sem togaði. Þar að auki ábyrgist MIT að veita nemendum fjárhagsaðstoð, óháð einkunnum og hvers lenskir þeir eru.“

En hafa Íslendingar þörf fyrir geimverkfræðinga? „Að minnsta kosti flugvélaverkfræðinga. Ég skoðaði að fara í tölvunarfræði sem annar hver nemandi er í, líka kjarnorku- og samrunaverkfræði sem væri erfiðara að fá vinnu við á Íslandi, en áfangar um þotuhreyfla og eldflaugar, já, takk! Stærsta hindrunin við að fá vinnu í þessu fagi í Bandaríkjunum er að fá öryggisheimild sem krefst ríkisborgararéttar í nánast öllum tilfellum. Án hennar fengi ég ekki að skúra gólfið í hönnunardeild Lockheed Martin.“

Hann reiknar þó með nokkurra ára veru í Bandaríkjunum. „Ég byrja á meistaranáminu í haust en til að komast í doktorsnámið þarf ég að standast röð stöðuprófa. Ég held áfram á meðan ég hef gaman af náminu og rannsóknarverkefnunum.“

Nú ætlar hann að njóta íslenska sumarsins og vinna í markaðsáhættu í Landsbankanum. „Verkfræðin er tól sem maður getur notað í allt milli himins og jarðar,“ segir hann. „Það er mikilvægt að byggja upp reynslu og þekkingu á mörgum sviðum.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×