Golf

Fjórir efstir og jafnir eftir fyrstu tvo hringina á Opna bandaríska

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Paul Casey er einn fjögurra efstu manna.
Paul Casey er einn fjögurra efstu manna. vísir/epa
Fjórir kylfingar eru efstir og jafnir eftir fyrstu tvo keppnisdagana á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi.

Þetta eru Englendingarnir Paul Casey og Tommy Fleetwood og Bandaríkjamennirnir Brian Harman og Brooks Koepka. Þeir eru allir á sjö höggum undir pari.

Margir sterkir kylfingar komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Þeirra á meðal var Dustin Johnson sem vann mótið í fyrra. Henrik Stenson, Bubba Watson og Rory McIlroy eru einnig úr leik.

Keppni heldur áfram í dag en bein útsending frá mótinu hefst klukkan 17:00 á Golfstöðinni.


Tengdar fréttir

Mickelson tekur fjölskylduna fram yfir US Open

Það varð ljóst nú í hádeginu að einn besti kylfingur heims, Phil Mickelson, gæti ekki tekið þátt á US Open sem hefst í dag. Hann dró sig úr keppni af fjölskylduástæðum.

Loftbelgur hrapaði á US Open | Myndbönd

Það var ekki bara golfið sem vakti athygli á US Open í gær því litlu mátti muna að illa færi er loftbelgur hrapaði til jarðar nærri vellinum.

Fowler leiðir á US Open

Bandaríkjamaðurinn Rickie Fowler byrjaði best allra á öðru risamóti ársins, US Open, sem hófst á Erin Hills í Wisconsin í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×