Handbolti

Janus Daði: Verð að nýta plássið sem ég fæ

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Janus var öflugur í síðasta leik.
Janus var öflugur í síðasta leik. vísir/epa
Janus Daði Smárason átti afar góða innkomu í leik Íslands og Tékklands í undankeppni EM 2018 á miðvikudaginn var.

Janus skoraði þrjú mörk í röð um miðjan seinni hálfleikinn og kom íslenska liðinu aftur inn í leikinn. Á endanum unnu Tékkar þó þriggja marka sigur, 27-24.

Þrátt fyrir tapið á miðvikudaginn eru strákarnir okkar aðeins einum sigri á Úkraínu frá því að tryggja sig inn á tíunda Evrópumótið í röð.

Langar að sýna hvað þeir geta

„Mér finnst við hafa alla burði til að vinna. Við erum hundsvekktir með niðurstöðu síðasta leiks og langar að sýna hvað við getum,“ sagði Janus í samtali við Vísi fyrir æfingu landsliðsins í Laugardalshöllinni í gær.

En hvað þarf Ísland gera betur í leiknum annað kvöld en það gerði í leiknum gegn Tékkum?

„Við klikkuðum á hroðalega mörgum skotum. Svo þurfum við að mæta meira klárir í þennan leik og við eigum helling inni hvað hugarfarið varðar. Nú erum við á heimavelli og þetta eru aðstæðurnar sem við nærumst í.“

Aron dregur mikið til sín

Janus segir að þegar hann spili með Aroni Pálmarssyni fyrir utan opnist mikið pláss fyrir hann sem hann þurfi að nýta.

„Þetta eru stórir og þungir gæjar. Aron dregur mikið til sín og þá fæ ég hellings pláss. Ég verð bara að nýta það. Þess vegna er ég valinn. Ég hlakka til að spila,“ sagði Janus sem varð danskur meistari með Aalborg í vor eftir að hafa gengið í raðir liðsins eftir HM í Frakklandi. Hann segir að það hafi verið gott að koma inn í lið Aalborg.

Þægileg aðlögun

„Ég var fljótur að koma mér vel fyrir. Þetta er ungt lið. Ég var með Arnór [Atlason] og Stefán [Rafn Sigurmannsson] með mér og Aron [Kristjánsson] er þarna líka,“ sagði Janus.

„Þetta var voða upplagt. Ef ég ætlaði að fara eitthvert á miðju tímabili var það til Danmerkur þar sem ég hef tungumálið,“ bætti Janus við en hann var búsettur í Danmörku um tíma áður en hann kom til Íslands 2014 og gekk til liðs við Hauka.


Tengdar fréttir

Þurfum að nýta heimavöllinn

Íslenska karlalandsliðið í handbolta er einum sigri frá því að tryggja sér sæti á tíunda Evrópumótinu í röð. Annað kvöld mæta íslensku strákarnir ólseigum Úkraínumönnum sem unnu fyrri leik liðanna ytra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×