Körfubolti

Fengu sér í haus og fengu það í hausinn

Elías Orri Njarðarson skrifar
Monta Ellis, leikmaður Indiana Pacers.
Monta Ellis, leikmaður Indiana Pacers. visir/epa
Monta Ellis, leikmaður Indiana Pacers og Reggie Bullock, leikmaður Detroit Pistons í NBA-deildinni, voru dæmdir í fimm leikja bann fyrir brot á fíkniefnareglum deildarinnar.

Monta Ellis sem er 31 árs gamall var með 8.5 stig í leik að meðaltali í vetur og Reggie Bullock sem er 26 ára gamall var með 4.5 stig.

Bannið tekur gildi á næsta tímabili og munu þeir því ekki vera í leikmannahópum hjá liðunum sínum fyrstu fimm leiki tímabilsins.

Monta Ellis hefur verið í deildinni síðan árið 2005 og Bullock síðan 2013.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×