Menning

Búi sló í gegn í Noregi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Búi sáttur en hér má sjá tvær vörur frá honum.
Búi sáttur en hér má sjá tvær vörur frá honum.
Búi Bjarmar Aðalsteinsson vöruhönnuður sýndi verkefnið sitt the FlyFactory í Momentum 9 galleríinu í Moss í Noregi á laugardaginn.

Verkefnið á að sýna möguleika á vistvænni matvælaframleiðslu á próteini þar sem svartar hermanna flugur eru í aðalhlutverki.

Verkefnið sýnir hvernig lirfur eru ríkar í fitu og próteinum og því tilvaldar til manneldis. Þessi framleiðsla skilur eftir sig hreint og næringarríkt efni sem er hægt að bæta við í rotmassa og rækta grænmeti, ávexti og krydd. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Búa og teyminu í kringum hann.

Hitinn frá ísskápnum sem er notaður til lirfu undirbúnings í verkefninu er notaður til að skapa raka og hita fyrir flugurnar. Lirfur hafa sömu næringar-, fitu- og próteingildi og kjöt en þurfa fimm til tíu sinnum minni fæðu til að skila sambærilegum vexti og önnur dýr sem eru ræktuð til kjöt framleiðslu.

Mikilvægt fyrir sjálfbærni

Búi segir að þetta lýsi mikilvægi sjálfbærs ferlis þar sem við sjáum samþætt skref í framleiðslukeðju. Þetta sýnir einnig möguleika skordýraeldis sem framtíðarfæðu eða fæðubótarefni. Verkefnið er innblásið af tillögum Sameinuðu Þjóðanna um að finna nýjar vistfræðilegar matvælaauðlindir fyrir vesturheiminn.

Verkefnið, sem var styrkt af Matís, hefur vakið mikla athygli en the FlyFactory var útskriftarverkefnið hans Búa frá Listaháskóla Íslands árið 2014.

Það var sýnt í Listasafni Reykjavíkur á útskriftarsýningu Listaháskólans og hélt svo áfram til sýningar í Ars Electronica í Linz, Austurríki árið 2015 og í framhaldi í Polytec Museum í Moskvu, Rússlandi árið 2016. Plaggött fyrir  sýninguna í Moss voru unninn af Emil Ásgrímssyni grafískum hönnuði. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×