Erlent

Brexit-viðræður kortlagðar í Brussel

Kristín Ólafsdóttir skrifar
David Davis, sem fer fyrir samninganefnd Bretlands, og Michel Barnier, helsti samningamaður Evrópusambandsins, í Brussel í dag.
David Davis, sem fer fyrir samninganefnd Bretlands, og Michel Barnier, helsti samningamaður Evrópusambandsins, í Brussel í dag. Vísir/AFP
Breska samninganefndin hefur fallist á að geyma umræður um frjáls viðskipti þangað til búið er að finna lausn á kostnaði við úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu en slitaviðræður Bretlands við Evrópusambandið hófust í dag í Brussel. Utanríkisráðherra Íslands segir mikilvægt að Íslendingar gæti hagsmuna sinna í kjölfar samninga Bretlands og Evrópusambandsins.

David Davis, sem fer fyrir samninganefnd Bretlands, sagði þessa niðurstöðu á forgangsröðun viðræðanna í samræmi við áætlun ríkisstjórnarinnar. The Guardian greindi frá þessu í umfjöllun um fyrsta dag viðræðna.

„Það skiptir ekki máli hvernig þær byrja heldur hvernig þeim lýkur,“ sagði Davis eftir fyrsta dag viðræðna í Brussel höfuðborg Belgíu. „Ekkert er samþykkt fyrr en allt hefur verið samþykkt.“

Michel Barnier, aðal samningamaður Evrópusambandsins, sagði að Bretland væri ekki í stöðu til að stýra tímasetningu viðræðanna.

„Bretland hefur beðið um að segja sig úr Evrópusambandinu, þessu er ekki öfugt farið, svo við þurfum að gera ráð fyrir afleiðingum ákvarðana okkar og þær afleiðingar eru umtalsverðar,“ sagði Barnier aðspurður hvort Evrópusambandið hygðist sjálft slaka á einhverjum kröfum. Hann bað Breta um að vanmeta ekki umræddar afleiðingar.

Þá mun Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, gera sér ferð til Brussel á fimmtudag til að svipta hulunni af nýju tilboði Bretlands sem á að tryggja réttindi ríkisborgara Evrópusambandsríkja sem búa í Bretlandi.

Landamæri Norður-Írlands, sem tilheyrir Bretlandi og þar af leiðandi úrsögn þess úr Evrópusambandinu, og Írlands voru einnig tekin fyrir á fundinum. Þá var dagurinn þó að mestu notaður til að teikna upp skipulag komandi viðræðna og ákvarða helstu tímasetningar.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.Vísir/Stefán
Íslendingar þurfa að fylgjast vel með

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sagði mikilvægt fyrir Íslendinga að fylgjast vel með Brexit-viðræðunum sem hófust í dag. Hann lagði áherslu á mikilvægi viðskiptasambands Íslands og Breta og þeirra hagsmuna sem þar bæri að gæta.

„Þetta er mikilvægasta viðskiptaland okkar, Bretar, og búið að vera það lengi en það sem um þarna ræðir, það ætti í rauninni ekki að vera stórmál þegar eitthvað Evrópuríki ákveður að ganga úr ákveðnu samstarfi eins og þarna er um að ræða,“ sagði Guðlaugur í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Hann sagði stærsta vandann við úrsögn Breta úr sambandinu í raun tvenns konar.

„Það er annars vegar að Bretar borga mjög mikið inn í sambandið, þeir borga um 16% af heildarkostnaðinum, og það er mjög mikið áfall fyrir Evrópusambandið að missa það. Hitt er að Evrópusambandið vill alls ekki að fleiri gangi út og vilja helst að skilmálarnir verði þannig að það verði ekki spennandi fyrir aðra að fylgja í kjölfarið.“

Nokkrir möguleikar í kortunum

Þá ræddi hann einnig samningsstöðu Íslendinga gagnvart Evrópusambandinu í gegnum Evrópska efnahagssvæðið, EES, og Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA. Hann sagði nokkra möguleika í stöðunni varðandi stöðu Íslands.

„Það eru nokkrar sviðsmyndir uppi, í fyrsta lagi að EFTA-ríkin myndu gera sameiginlegan samning við Breta, því þetta snýst um það að þegar Bretar fara úr Evrópusambandinu þá að öllu óbreyttu myndu hækka tollar á ýmsum vörum sem við erum með tollfrelsi á.“

Þá sagði hann einnig koma til greina að Íslendingar geri tvíhliða samning við Breta eða þá að EFTA-löndin verði hreinlega tekin inn í samninga á milli Evrópusambandsins og Bretlands.

Stefnt er að því að Brexit-viðræðum ljúki innan næstu tveggja ára.

Viðtalið við Guðlaug Þór má hlusta á í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

Angela Merkel segir Evrópusambandið tilbúið til Brexit-viðræðna

Angela Merkel kanslari Þýskalands segist ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að hefja viðræður um úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu eins og áætlað var eftir að Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, náði ekki meirihluta í nýafstöðnum kosningum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×