Lífið

Kjóstu fallegasta íslenska heimilið: Ásgeir Kolbeins, DAS-húsið, bíó í kjallara og villan á Selfossi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Í fyrsta riðli eru níu gullfalleg heimili. Taktu þátt í kosningunni hér fyrir neðan.
Í fyrsta riðli eru níu gullfalleg heimili. Taktu þátt í kosningunni hér fyrir neðan.
Undanfarnar vikur hafa þættirnir Falleg íslensk heimili slegið í gegn á Stöð 2 og Vísi. Alls hafa áhorfendur farið í heimsókn inn á 27 heimili. Í þáttunum voru ávallt þrír sérfræðingar og þau voru; Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir.

Þrjú heimili voru heimsótt í hverjum þætti og fengu sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni.

Nú er komið að því að kjósa um fallegasta íslenska heimili landsins. Kosningin fer fram á Vísi og verður fyrirkomulagið eftirfarandi: Heimilunum verður skipt í þrjá níu húsa riðla. Efstu húsin úr hverjum riðli komast í úrslit og að lokum stendur eftir fallegast íslenska heimilið.

Hér að neðan má sjá fyrstu níu heimilin og neðst í fréttinni er hægt að kjósa.

1. Felix og Baldur búa í einstöku einbýlishúsi í Vesturbænum
2. DAS-húsið fræga í Garðabæ
3. Einstaklingsíbúð í Sólheimum með flottasta þvottahúsi borgarinnar
4. Högnuhús í Garðabæ - Eitt af hundrað merkustu húsum 20. aldar í norður- og miðhluta Evrópu
5. Amerísk villa á Selfossi
6. Einbýlishús Seyðisfirði sem hýsti áður símstöðvarstjórann
7. Risa einbýlishús í Keflavík með bíósal í kjallaranum
8. Bætast við tveir auka sumarmánuðir í Fossvogsdalnum
9. Heimili Ásgeirs og Bryndísar í Breiðholti
Þessi níu heimili eru í fyrstu lesendakönnuninni. Hvaða heimili ber af? Taktu þátt í könnuninni hér fyrir neðan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×