Golf

Lögreglan í Jupiter heldur áfram að leka myndböndum með Tiger

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods. Mynd.
Handtaka kylfingsins Tiger Woods 29. maí síðastliðinn hefur örugglega ekki farið framhjá neinum íþróttaáhugamanni en lífið hjá þessum fyrrum besta kylfingi heims hefur verið ein hrakfarasagan á fætur annarri síðustu ár.

Mörg vandamál í einkalífinu og langvinn meiðsli hafa tekið sinn toll og Tiger hefur lítið sem ekkert getað spilað golf vegna bakmeiðsla.

Það var því ekki á það bætandi þegar lögreglan handtók kappann í byrjun vikunnar fyrir meintan ölvunarakstur.

Lögreglan í Jupiter í Flórída-fylki hefur ekkert að fela og í gær gaf hún út myndband af handtöku Tiger þar sem fór ekkert á milli mála að hann var undir áhrifum af einhverju.

Tiger sjálfur heldur því fram að hann hafi ekki verið að drekka eða neyta eiturlyfja heldur var orsökin óheppileg blanda að lyfjum sem hann er að taka á meðan hann er að jafna sig á aðgerðum á baki.

Lögreglan í Jupiter heldur hinsvegar áfram að leka myndböndum með Tiger og nú er komið í dagsljósið myndband af því lögreglan var komin með Tiger handjárnað niður á lögreglustöð.

Þar má meðal annars sjá Tiger blása í áfengismæli en þar mældist ekkert sem styður við sögu Tiger af því að hann hafi ekki verið að drekka.  





Það er vissulega sláandi að sjá Tiger dúsa handjárnaðan á stól að berjast við það að halda sér vakandi.

Tiger var látinn laus daginn eftir en mál hans verður síðan tekið fyrir 5. Júlí næstkomandi og þar má búast við miklu fjölmiðlafári.




Tengdar fréttir

Benzinn hans Tigers var stórskemmdur

Tiger Woods var handtekinn í Flórída á dögunum og það þarf ekki að koma á óvart að lögreglumenn hafi talið að hann væri ölvaður.

Tiger gripinn ölvaður undir stýri

Vandræðunum í lífi Tiger Woods virðist ekki vera lokið en hann var handtekinn í nótt. Hann var þá ölvaður undir stýri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×