Glamour

Halda upp á fertugsafmæli á Bahamas

Ritstjórn skrifar
glamour/getty
Kim Kardashian og Kanye West sem fögnuðu nýverið þriggja ára brúðkaupsafmæli sínu, hafa ákveðið að byrja að fagna afmæli rapparans snemma og eru farin í frí til Bahamas. Þau eru farin í stutta helgarferð en tóku að sjálfsögðu börnin tvö með, North og Saint, ásamt nánustu vinum og fjölskyldu í tilefni fertugsafmæli Kanye þann 8.júní.

Sjónvarpsstöðin E! News segir frá því samkvæmt sínum heimildarmönnum að þau hafi leigt gríðarstóra og glæsilega villu fyrir fríið ásamt því að koma með fleiri kassana af eigin víni með sér á eyjuna. Sjónvarpsstöðin segir jafnframt frá því að krakkarnir séu með sitt eigið leiksvæði og að allir séu skemmta sér svakalega vel í fríinu. 

Kardashian fjölskyldan.glamour/getty
Parið á góðri stundu.glamour/getty





×