Menning

Pamína og Tamínó í Fella- og Hólakirkju

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Organistinn Arnhildur milli söngvaranna Mörtu Kristínar og Einars Dags.
Organistinn Arnhildur milli söngvaranna Mörtu Kristínar og Einars Dags. Mynd/Bjarni Hallgrímur Bjarnason
Arnhildur Valgarðsdóttir organisti fær til sín gesti í Fella-og Hólakirkju í dag, laugardag, til að flytja þar söngdagskrá klukkan 17. Það eru þau Marta Kristín Friðriksdóttir sópran og Einar Dagur Jónsson tenór.

Á dagskránni verða ýmsar frægar óperuaríur, meðal annars eftir Puccini og Donizetti, sóló og dúettar og einnig nokkrar af perlum íslenskra sönglaga.

„Marta Kristín og Einar Dagur eru einstaklega efnileg ungmenni,“ segir Arnhildur. „Nefna má að þau sungu Pamínu og Tamínó í Töfraflautunni í uppsetningu Söngskólans í vor og þau syngja að sjálfsögðu aríur úr Töfraflautunni á tónleikunum.“

Þetta verða síðustu tónleikar vorsins undir yfirskriftinni Frjáls eins og fuglinn sem Arnhildur kom á laggirnar í janúar 2016. Gestum er boðinn kaffisopi og konfektmolar í hléinu.

Aðgangseyrir er 2.500 krónur en 1.500 fyrir eldri borgara og öryrkja og ókeypis fyrir börn 12 ára og yngri. Ekki verður posi á staðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×