Golf

Hákon jafnaði vallarmetið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hákon er með tveggja högga forystu eftir fyrsta keppnisdaginn.
Hákon er með tveggja högga forystu eftir fyrsta keppnisdaginn. mynd/seth@golf.is
Hákon Örn Magnússon, GR, og Helga Kristín Einarsdóttir, Keili, eru með forystu eftir fyrsta keppnisdaginn á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni. Mótið fer fram á Hamarsvelli í Borgarnesi.

Hinn 19 ára gamli Hákon jafnaði vallarmetið á Hamarsvelli þegar hann lék á 65 höggum, eða á sex höggum undir pari. Bjarki Pétursson úr GB deilir nú vallarmetinu með Hákoni.

Hákon er með tveggja högga forystu á Kristófer Karl Karlsson og Kristján Þór Einarsson, samherja úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar.

Helga Kristín er með tveggja högga forystu á þær Huldu Clöru Gestsdóttur, sem er aðeins 15 ára gömul, og Sögu Traustadóttur. Helga Kristín lék hringinn í gær á einu höggi yfir pari.

Sigurvegarinn á síðasta móti á Eimskipsmótaröðinni, Berglind Björnsdóttir, er í 4.-8. sæti á fimm höggum yfir pari.

Staðan í karlaflokki:

1. Hákon Örn Magnússon, GR 65 högg - 6

2.- 3. Kristófer Karl Karlsson, GM 67 högg - 4     

2.- 3. Kristján Þór Einarsson, GM 67 högg    - 4

4.- 5. Lárus Ingi Antonsson, GA 68 högg -3

4.- 5. Vikar Jónasson, GK 68 högg -3

6. Viktor Ingi Einarsson, GR 69 högg -2

7.-9. Stefán Þór Bogason, GR 70 högg    -1

7.-9. Hlynur Bergsson, GKG 70 högg -1

7.-9. Egill Ragnar Gunnarsson 70 högg -1

Staðan í kvennaflokki:

1. Helga Kristín Einarsdóttir, GK 72 högg +1

2.- 3. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG 74 högg +3

2.- 3. Saga Traustadóttir, GR 74 högg + 3

4.-8. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK 76 högg +5

4.-8.  Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA 76 högg +5    

4.-8.  Særós Eva Óskarsdóttir, GKG 76 högg +5    

4.-8.  Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 76 högg +5

4.-8.  Berglind Björnsdóttir, GR 76 högg +5

9. Heiða Guðnadóttir, GM 79 högg +8

10. Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, GA 80 högg +9

Helga Kristín lék vel á fyrsta keppnisdegi mótsins.mynd/seth@golf.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×