Golf

Valdís Þóra hækkaði sig um 48 sæti

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valdís Þóra lék á þremur höggum undir pari í dag.
Valdís Þóra lék á þremur höggum undir pari í dag. Mynd/LET/Tristan Jones
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, náði sér vel á strik á þriðja degi Jabra Ladies Open mótinu sem er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Valdís Þóra fékk alls fimm fugla á hringnum í dag, tvo skolla og 11 pör. Hún lék því á þremur höggum undir pari.

Valdís Þóra er samtals á einu höggi yfir pari og er í 22.-24. sæti á mótinu.

Fyrir hringinn í dag var Valdís Þóra í 70. sæti og fór því upp um 48 sæti með spilamennsku sinni í dag.

Fjórði og síðasti hringurinn verður leikinn á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×