Innlent

Bjargaði fingri með tonnataki en missti annan

Anton Egilsson skrifar
Hafsteinn var mættur á traktorinn einungis nokkrum dögum eftir slysið.
Hafsteinn var mættur á traktorinn einungis nokkrum dögum eftir slysið. Mynd: Hafsteinn Davíðsson
Hafsteinn Davíðsson lenti í þeirri óskemmtilegu lífsreynslu á miðvikudaginn að klemmast í vél við vinnu sína með þeim afleiðingum að hluti af litla fingri og baugfingri fór af. Ekki tókst að bjarga litla puttanum en með hjálp tonnataks tókst Hafsteini að bjarga baugfingrinum.

„Klemmdist í vél í gær sem olli því að hálfur litli putti fór af og ekki var hægt að koma bitanum á. En tonnatakið sem ég límdi baugfingurinn saman með bjargaði honum svo ég næ að gifta mig eins og læknirinn sagði. Svo nú taka við einhverjir rólegir dagar,“ sagði Hafsteinn í færslu á Facebook síðu sinni í kjölfar atviksins umrædda.

Í samtali við Vísi segist Hafsteinn, sem starfar hjá Kjörís í Hverargerði, hafa klemmt sig á ammoníakspressu en fingur hans klemmdust á milli reimar og trissu. Hann segist að vonum feginn að baugfingurinn hafi bjargast.

„Ég klemmist í vél hjá okkur hérna í Kjörís og það klippist af litla putta og það fór nú ekki af baugfingrinum en hann skemmdist svolítið.”

Eins og sjá má missti Hafsteinn töluvert framan af litla fingri.Hafsteinn Davíðsson
Lætur fingramissinn ekki á sig fá

Það er þó ljóst að Hafsteinn lætur ekki bilbug á sér finna þrátt fyrir fingramissinn en þegar blaðamaður náði af honum tali var hann staddur úti á traktor.

„Ég er bara að slá hérna á traktornum með aðra höndina uppi. Það þýðir ekkert að stoppa.”

Aðspurður um hvernig honum hafi dottið í hug að bregða á það ráð að grípa til tonnataks til að halda puttanum á segir hann það einfaldlega gamalt þjóðráð.

„Ég var í Slysavarnarskóla sjómanna á námskeiði og þeir töluðu um þetta þar. Þetta væri oft notað ef að það væri ekki til saumur eða annað. Ég setti nú bara smá dropa af tonnataki og ýtti puttanum upp og þá hélst hann þarna uppi.”

Hafsteinn segir það hins vegar ekki þýða neitt að láta fingramissinn á sig fá en að hann gæti þó þurft að ganga í önnur störf hjá fyrirtækinu á næstu misserum.

„Ætli ég verði ekki bara símadama næstu vikurnar,” segir Hafsteinn kíminn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×