Golf

Tveir 19 ára GR-ingar í forystu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Saga lék á tveimur höggum yfir pari í dag.
Saga lék á tveimur höggum yfir pari í dag. mynd/seth@golf.is
Tveir 19 ára kylfingar úr GR eru með tveggja högga forskot í karla- og kvennaflokki fyrir lokahringinn á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni. Mótið fer fram á Hamarsvelli í Borgarnesi.

Hákon Örn Magnússon er á -7 samtals og Saga Traustadóttir á +5 samtals en keppni lýkur á morgun.

Hákon jafnaði vallarmetið þegar hann lék á sex höggum undir pari í gær. Í dag lék hann svo á einu höggi undir pari og er því samtals á sjö undir.

Hákon er tveimur höggum á undan Vikari Jónssyni úr GK. Þeir eru langefstir á mótinu.

Saga lék á tveimur höggum yfir pari í dag og er samtals á fimm höggum yfir pari.

Þrír kylfingar eru jafnir í 2.-4. sæti á sjö höggum yfir pari. Þetta eru þær Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, og Helga Kristín Einarsdóttir, GK.

Staðan í karlaflokki:

1. Hákon Örn Magnússon, GR (65-70) 135 högg -7

2. Vikar Jónasson, GK (68-69) 137 högg -5

3.-7. Heiðar Davíð Bragason, GHD (74-68) 142 högg par

3.-7. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG (71-71) 142 högg par

3.-7. Theodór Emil Karlsson, GM (71-71) 142 högg par

3.-7.  Henning Darri Þórðarson, GK (71-71) 142 högg par

3.-7. Hlynur Bergsson, GKG (70-72) 142 högg par

8.-12. Patrekur Nordquist Ragnarsson, GR (74-69) 143 högg +1

8.-12. Aron Snær Júlíusson, GKG (73-70) 143 högg +1

8.-12. Egill Ragnar Gunnarsson, GKG (70-73) 143 högg +1

8.-12. Kristófer Karl Karlsson, GM (67-76) 143 högg +1

8.-12. Kristján Þór Einarsson, GM (67-76) 143 högg +1

Staðan í kvennaflokki:

1. Saga Traustadóttir, GR (74-73) 147 högg +5

2.-4. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (76-73) 149 högg +7

2.-4. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG (74-75) 149 högg +7

2.-4. Helga Kristín Einarsdóttir, GK (72-77) 149 högg +7

5.-6. Særós Eva Óskarsdóttir, GKG (76-78) 154 högg +12

5.-6. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK (76-78) 154 högg +12

Hákon er með tveggja högga forystu í karlaflokki.mynd/seth@golf.is

Tengdar fréttir

Hákon jafnaði vallarmetið

Hákon Örn Magnússon, GR, og Helga Kristín Einarsdóttir, Keili, eru með forystu eftir fyrsta keppnisdaginn á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni. Mótið fer fram á Hamarsvelli í Borgarnesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×