Golf

Vikar og Ragnhildur stóðu uppi sem sigurvegarar á Símamótinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vikar og Ragnhildur, sigurvegarar á Símamótinu.
Vikar og Ragnhildur, sigurvegarar á Símamótinu. mynd/seth@golf.is
Vikar Jónassson úr GK og Ragnhildur Kristinsdóttir GR hrósuðu sigri á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni sem lauk í dag á Hamarsvelli í Borgarnesi.

Þetta er fyrsti sigur hins tvítuga Vikars á mótaröð þeirra bestu en þriðji sigur Ragnhildar sem er 19 ára gömul. Mótið var það fjórða af alls átta á Eimskipsmótaröðinni á tímabilinu 2016-17.

Mikil spenna var í karlaflokknum fyrir lokahringinn þar sem Vikar tryggði sér sigurinn með fugli á lokaholunni. Vikar lenti í glompu við 18. flötina í öðru högginu en holan er par fimm. Hann sló glæsilegt högg úr glompunni og setti síðan niður um tveggja metra pútt fyrir sigrinum en hann lék lokahringinn á 70 höggum eða -1.

Hákon Örn Magnússon úr GR var með tveggja högga forskot fyrir lokahringinn. Hann lék á +2 í dag og var einu höggi á eftir Vikari. Kristján Þór Einarsson úr GM og Fannar Ingi Steingrímsson úr GHG deildu þriðja sætinuá -3 samtals.

„Ég hef æft mikið undanfarin misseri og þá sérstaklega púttin. Það hefur skilað árangri og ég er mjög ánægður að hafa brotið ísinn og sigrað í fyrsta sinn á ferlinum. Mér leið vel á hringnum í dag og sérstaklega eftir að Birgir Björn Magnússon félagi minn úr Keili gerðist aðstoðarmaður minn  eftir að hann hafði lokið leik. Þá varð andrúmsloftið létt og skemmtilegt - og mér leið vel í dag,“ sagði Vikar Jónasson eftir hringinn í dag.

Frá vinstri: Fannar Ingi Steingrímsson, Kristján Þór Einarsson, Vikar Jónasson og Hákon Örn Magnússon.mynd/seth@golf.is
Ragnhildur Kristinsdóttir var tveimur höggum á eftir Sögu Traustadóttur liðsfélaga sínum úr GR fyrir lokahringinn.

Ragnhildur sýndi styrk sinn þegar mest á reyndi og lék á einu höggi undir pari og sigraði með fjögurra högga mun. Þetta er þriðji sigur Ragnhildar á Eimskipsmótaröðinni.

„Ég hrökk í gang í gær á öðrum keppnisdeginum þegar ég fékk fjóra fugla á síðustu fimm holunum. Það breytti miklu fyrir sjálfstraustið og ég var ákveðinn í því að sigra þegar ég mætti í dag á teig,“ sagði Ragnhildur eftir hringinn í dag.

Frá vinstri: Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Saga Traustadóttir.mynd/seth@golf.is
Lokastaðan í karlaflokki:

1. Vikar Jónasson, GK (68-69-70) 207 högg -6

2. Hákon Örn Magnússon, GR (65-70-73) 208 högg -5

3.-4. Kristján Þór Einarsson, GM (67-76-67) 210 högg -3

3.-4. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG (71-71-68) 210 högg -3

5. Henning Darri Þórðarson, GK (71-71-69) 211 högg -2

6. Hlynur Bergsson, GKG (70-72-70) 212 högg -1

7. Heiðar Davíð Bragason, GHD (74-68-71) 213 högg par

8.-10. Egill Ragnar Gunnarsson, GKG (70-73-71) 214 högg +1

8.-10. Patrekur Nordquist Ragnarsson, GR (74-69-71) 214 högg +1

8.-10. Theodór Emil Karlsson, GM (71-71-72) 214 högg +1

Lokastaðan í kvennaflokki:

1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (76-73-70) 219 högg +6

2. Saga Traustadóttir, GR (74-73-76) 223 högg +10

3. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG (74-75-76) 225 högg +12

4. Helga Kristín Einarsdóttir, GK (72-77-78) 227 högg +14

5. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK (76-78-76) 230 högg +17




Fleiri fréttir

Sjá meira


×