Fótbolti

Sjáðu flottustu mörkin í Meistaradeildinni í vetur | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nefnd á vegum UEFA hefur valið 10 flottustu mörkin í Meistaradeild Evrópu á síðasta tímabili. Í nefndinni sátu menn á borð við Sir Alex Ferguson og Dejan Stankovic.

Eitt af þessum 10 flottustu mörkum Meistaradeildarinnar kom í sjálfum úrslitaleiknum á laugardaginn var. Markið gerði Mario Mandzukic með glæsilegri bakfallsspyrnu. Hann jafnaði þá metin í 1-1.

Mandzukic og félagar hans í króatíska landsliðinu mæta því íslenska á sunnudaginn kemur og það er vonandi að hann taki ekki upp á því skora svipað mark á Laugardalsvellinum.

Flottustu mörkin í Meistaradeildinni í vetur má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir

Mögnuð markatölfræði Ronaldos

Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk þegar Real Madrid vann Juventus, 1-4, í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Þúsund slösuðust í troðningi í Tórínó

Sjö ára barn er sagt í lífshættu eftir mikinn troðning sem skapaðist þegar flugeldur sprakk á fjölmennu torgi þar sem fólk var að horfa á úrslit Meistaradeildar Evrópu í Tórínó á Ítalíu í gærkvöldi. Breska ríkisútvarpið BBC segir að þúsund manns hafi slasast í troðningnum.

Ramos: Áttum stefnumót við söguna

Sergio Ramos lyfti Evrópubikarnum eftir 1-4 sigur Real Madrid á Juventus í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×