Lífið

Kjóstu fal­­legasta ís­­lenska heimilið: Húsið glæsilega við Mývatn, mæðgurnar og Happie Furniture íbúðin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Í þriðja riðli eru níu gullfalleg heimili. Taktu þátt í kosningunni hér fyrir neðan.
Í þriðja riðli eru níu gullfalleg heimili. Taktu þátt í kosningunni hér fyrir neðan.
Undanfarnar vikur hafa þættirnir Falleg íslensk heimili slegið í gegn á Stöð 2 og Vísi. Alls hafa áhorfendur farið í heimsókn inn á 27 heimili. 

Í þáttunum voru ávallt þrír sérfræðingar og þau voru; Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir.

Þrjú heimili voru heimsótt í hverjum þætti og fengu sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni.

Nú er komið að því að kjósa um fallegasta íslenska heimili landsins. Kosningin fer fram á Vísi og verður fyrirkomulagið eftirfarandi: Heimilunum verður skipt í þrjá níu húsa riðla. Efstu húsin úr hverjum riðli komast í úrslit og að lokum stendur eftir fallegast íslenska heimilið.

Hér að neðan má sjá þau níu heimili sem mynda þriðja riðilinn af þremur og neðst í fréttinni er hægt að kjósa.

Fyrsti riðill fór í loftið á fimmtudaginn, næsti á föstudaginn og eru þúsundir lesenda nú þegar búnir að taka þátt.

1. Ekta íslensk og rómantísk íbúð í hjarta borgarinnar
2. Einstaklega fallegt einbýlishús við Mývatn
3. Draumaraðhús við sjávarloftið úti á Nesi
4. Mæðgurnar í Grafarvoginum sem tóku íbúðina í nefið
5. Glæsilegt einbýlishús á Akureyri með útsýni út Eyjafjörðinn
6. Stórbrotið einbýlishús eftir Gísla Halldórsson á Tómasarahaga
7. Fólkið á bak við Happie Furniture
8. Keyptu rétt áður en kreppan skall á
9. Sveitarómantík í nýuppgerðu einbýlishúsi á Reyðarfirði
Þessi níu heimili eru í þriðju lesendakönnuninni. Hvaða heimili ber af? Taktu þátt í könnuninni hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×