Sport

Segir það brandara að hann sé í hópi 100 bestu leikmanna NFL-deildarinnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
JJ Watt.
JJ Watt. Vísir/Getty
Það er heiður fyrir leikmenn ameríska fótboltans að vera valdir í hóp hundrað bestu leikmenn NFL-deildarinnar. Sumir eru þó ekki ánægðir með það.

Deildin liggur í dvala frá febrúar fram í lok júlí og NFL-sjónvarpsstöðin þarf að fylla upp í dagskrá sína með áhugaverðu efni. Það er þannig árlegur viðburður hjá stöðinni að telja niður hundrað bestu leikmenn NFL-deildarinnar.

Það eru náttúrulega ekki allir sáttir með valið eða röðina, sumir telja sig eiga vera ofar á listanum og einhverjir gráta það að þeir séu ekki á þessum úrvalslista NFL-leikmanna.

Það nýjasta í tengslum við topp 100 listann er að leikmaður er að hneykslast á því á samfélagsmiðlum að hann sé í hópi hundrað bestu leikmanna NFL-deildarinnar. Leikmaðurinn sem um ræðir er reyndar ein af stærstu stjörnum deildarinnar,  nefnilega varnartröllið J.J. Watt hjá Houston Texans.

J.J. Watt var valinn 35. besti leikmaður NFL-deildarinnar og viðbrögð hans voru: „Ég spilaði þrjá leiki á síðasta tímabili.... þessi listi er brandari,“ skrifaði J.J. Watt á Twitter-síðu sína.







Hann var vissulega meiddur nær allt síðasta tímabil en engu síður er þessi frábæri leikmaður að falla niður um 32 sæti á listanum því hann var í þriðja sæti á listanum fyrir árið 2016.

J.J. Watt hefur átt frábæran feril hingað til en hann hefur meðal annars þrisvar sinnum verið valinn besti varnarmaður deildarinnar. Watt segist líka vera farinn að æfa á fullu og ætti því að mæta fullfrískur til leiks þegar næsta tímabil hefst.

Meiðslin voru áfall fyrir hann og liðið hans en með hann heilan má búast við miklu af liði Houston Texans í haust.

Verði Watt heill og spili af sama krafti og áður þá er öruggt að hann verður á topp 100 listanum á næsta ári hvort sem hann kærir sig um það ekki.

JJ Watt er hér til vinstri númer 99.Vísir/Getty
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×