Innlent

Manndráp í Mosfellsdal: Jón Trausti og nýdæmdir bræður á meðal handteknu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Trausti var handtekinn fyrir að ráðast á lögreglumenn í Leifsstöð árið 2003.
Jón Trausti var handtekinn fyrir að ráðast á lögreglumenn í Leifsstöð árið 2003. Vísir/Hari
Yfirheyrslur yfir sexmenningum sem handtekin voru í gærkvöldi í tengslum við manndráp í Mosfellsdal hafa staðið yfir í nótt. Um er að ræða fimm karlmenn og eina konu. Þar á meðal eru Jón Trausti Lúthersson og bræðurnir Marcin Wieslaw Nabakowski og Rafal Marek Nabakowski sem hlutu dóm fyrir skotárás í Breiðholtinu í febrúar.

Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás við Æsustaði í Mosfellsdal klukkan 18:24 í gærkvöldi og fór fjölmennt lið lögreglumanna, þar á meðal sérsveitarmenn, á staðinn. Fyrrnefnd sex voru handtekin en maðurinn sem lést var úrskurðaður látinn síðar um kvöldið. Hann var um fertugt.

Rannsókn málsins er umfangsmikil að sögn Gríms Grímssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum hinna handteknu en hve mörgum liggur ekki ljóst fyrir. 

Árásin var hrottaleg eins og fjallað var um á Vísi í morgun. Árásarmennirnir notuðust við járnkylfur auk þess sem ekið var yfir fætur mannsins á amerískum pallbíl.

Lögregla á vettvangi í gær.Vísir/Höskuldur Kári
Forsprakki í mótorhjólaklúbbi

Meðal handteknu er Jón Trausti Lúthersson sem var endurtekið í kastljósi fjölmiðlanna síðasta áratug þegar mótorhjólagengi voru að ryðja sér til rúms á Íslandi.

Hann hefur hlotið dóma fyrir líkamsárás en hann réðst meðal annars inn á ritstjórnarskrifstofur DV haustið 2004 og beitti Reyni Traustason, þáverandi ritstjóra blaðsins, ofbeldi. Hlaut hann tveggja mánaða dóm fyrir.

Jón Trausti stofnaði mótorhjólaklúbbinn Fáfni sem síðar varð hluti af Vítisenglum. Hann hætti um svipað leyti, stofnaði Black Pistons MC sem var stuðningsklúbbur Outlaws.

Lítið hefur spurst til Jóns Trausta undanfarin ár.

Bræðurnir á leið fyrir dóm í byrjun árs.Vísir/Anton Brink
Nýdæmdir bræður

Þá eru einnig meðal handteknu bræðurnir Marcin Wieslaw Nabakowski og Rafal Marek Nabakowski. Þeir hafa ítrekað komið við sögu lögreglu fyrir minniháttar brot undanfarin áratug. Allt þar til í ágúst síðastliðnum þegar þeir voru handteknir í tengslum við skotárás við Leifasjoppu í Iðufelli í Breiðholti.

Hlutu þeir rúmlega tveggja og hálfs árs dóm fyrir árásina í héraðsdómi í febrúar síðastliðnum en Marcin var sýknaður af ákæru um tilraun til manndráps. Hafði hann setið í gæsluvarðhaldi í rúmt hálft ár á meðan málið var til rannsóknar og þar til dómur féll.

Dómunum var áfrýjað og hafa þeir gengið lausir á meðan þess er beðið að málið verði tekið fyrir í Hæstarétti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×