Fótbolti

Neymar skoraði mark yfir Hollywood Boulevard | Sjáið myndbandið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Neymar upp á þakinu.
Neymar upp á þakinu. Mynd/Samsett/Youtube
Neymar, stjörnuleikmaður Barcelona og brasilíska landsliðsins, er staddur í Bandaríkjunum þessa daganna þar sem hann er að skemmta sér og öðrum.

Neymar mætti meðal annars á leik hjá Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar og þá mætti kappinn einnig í spjallþátt Jimmy Kimmel.

Neymar var þó ekki innandyra í „Jimmy Kimmel Live“ þættinum heldur var hann mættur með fótboltann sinn upp á þak.

Neymar fékk nefnilega það verkefni að skora mark yfir Hollywood Boulevard eina frægustu og fjölförnustu götuna í Los Angeles.

Neymar tókst markmiðið sitt, reyndar ekki í fyrstu tilraun, og skoraði laglegt mark sem hann fagnaði vel með gestum í sal.  

Það þurfti reyndar að loka Hollywood Boulevard götunni á meðan þessi áhugaverði skotleikur Jimmy Kimmel stóð yfir.

Lofthræddir gætu reyndar átt í smá erfiðleikum með að horfa á tilraun Neymar enda kappinn staddur upp á litlu gervigrasi upp á þaki á byggingu þar sem hann þurfti eins mikið tilhlaup og mögulegt var.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×