Glamour

„Mig grunaði aldrei að þetta yrði besta ár lífs míns“

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Breska Glamour heldur árlega Women of the Year verðlaunin þar sem þeir sem hafa þótt skarað framúr á árinu á öllum sviðum fá verðlaun.

Að þessu sinni voru það til dæmis leikkonan Nicole Kidman, sem sló meðal annars í gegn í sjónvarpsþáttunum Big Little Lies, sem fékk verðlaun og er hún tók við verðlaununum sagði leikkonan, sem verður 50 ára á næstu dögum:

„Mig grunaði aldrei að þetta yrði besta ár lífs míns. Þegar ég var 40 ára hélt ég að ég væri sest í helgan stein 50 ára,“ sagði Kidman og tileinkaði verðlaunin leikkona ársins til Sofiu Coppola var sem var fyrsti kvenkyns kvikmyndaleikstjórinn til að vinna leikstjóri ársins verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes í 56 ár.



Vinningshafar 2017:

Gamanleikkona: Sharon Horgan

Besta leikkona í sjónvarpi: Vanessa Kirby

Fylgihlutahönnuður: Tabitha Simmons

Pistlahöfundur: Caitlin Moran

Trailblazer: Jennifer Hudson

Best á YouTube: Pixiwoo

Kvikmyndagerðakona: Sharon Maguire

Frumkvöðull: Jourdan Dunn

Höfundur: Anna Kendrick

Verðlaun ritstjóra: Winnie Harlow

Hönnuður ársins: Maria Grazia Chiuri

Maður ársinsJames Corden

Leikkona ársins: Nicole Kidman

Glamour innblástur: Amy Poehler 

 

Nicole Kidman ásamt ritstjóra breska Glamour, Jo Elvin.
Vinkonurnar Amy Poehler og Rashida Jones.
Jennifer Hudson í fallegum svört hvítum kjól.
Leikkonan Felicity Jones stórglæsileg í svörtum síðkjól.
Fyrirsætan Winnie Harlow fékk sérstök verðlaun frá ritstjóra Glamour.
Jourdan Dunn tók sig vel út í rauðum blúndukjól.
Söngvarinn Liam Payne vakti athygli fyrir góða hárgreiðslu.
Nicole Kidman í glæsilegum ljósfjólubláum kjól frá Erdem.





×