Golf

Jussi er búinn að velja golflandsliðin fyrir EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Saga Traustadóttir er ein af nýliðunum.
Saga Traustadóttir er ein af nýliðunum. Mynd/Golfsamband Íslands
Jussi Pitkänen, afreksstjóri Golfsambands Íslands, hefur valið eftirtalda kylfinga sem keppa fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni landsliða í júlí.

Um er að ræða þrjú landslið, karla-, kvenna - og stúlkna en liðin eru öll skipuð áhugakylfingum.

Fjórir nýliðar eru í íslensku landsliðunum sem keppa á EM. Helga Kristín Einarsdóttir úr GK og Saga Traustadóttir úr GR eru nýliðar í A-landsliði kvenna en þeir Fannar Ingi Steingrímsson úr GHG og Henning Darri Þórðarson úr GK eru nýliðar í A-landsliði karla.  



Karla- og kvennalandsliðin keppa í efstu deild um Evrópumeistaratitilinn.

Evrópukeppni landsliða kvenna:

11.-15. júlí: Montado Resort, Portúgal.

 

Anna Sólveig Snorradóttir (GK)

Berglind Björnsdóttir (GR)

Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK)

Helga Kristín Einarsdóttir  (GK)

Ragnhildur Kristinsdóttir (GR)

Saga Traustadóttir (GR)

 

Liðsstjóri: Björgvin Sigurbergsson.

Helga Kristín og Saga eru nýliðar í A-landsliði kvenna.

Evrópukeppni landsliða karla:

11.-15. júlí: Diamond CC, Austurríki.

 

Aron Snær Júlíusson (GKG)

Bjarki Pétursson (GB)

Fannar Ingi Steingrímsson (GHG)

Gísli Sveinbergsson (GK)

Henning Darri Þórðarson (GK)

Rúnar Arnórsson (GK)

Liðsstjóri: Arnór Ingi Finnbjörnsson.

Fannar Ingi og Henning Darri eru nýliðar í A-landsliði karla.  

 

Evrópukeppni stúlknalandsliða,

11.-15. júlí: St. Laurence Golf Club, Finnland

 

Fararstjóri: Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir.

Liðsstjóri: Jussi Pitkanen.

 

Amanda Guðrún Bjarnadóttir (GHD)

Andrea Ýr Ásmundsdóttir (GA)

Andrea Bergsdóttir (HILLS GK, Svíþjóð)

Hulda Clara Gestsdóttir (GKG)

Kinga Korpak (GS)

Zuzanna Korpak (GS)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×